Framboð Trump í sambandi við Rússa undanfarið ár

Fólk sem stóð Donald Trump Bandaríkjaforseta nærri í kosningabaráttunni átti í miklu sambandi við rússneska leyniþjónustmenn á undanförnu ári.

Donald Trump
Auglýsing

Starfs­fólk fram­boðs Don­alds J. Trump, Banda­ríkja­for­seta, var í sam­bandi við rúss­neska leyni­þjón­ustu­menn end­ur­tekið á und­an­förnu ári í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­un­um, 8. nóv­em­ber í fyrra. Þetta kemur fram í New York Times  og er vitnað til fjög­urra núver­andi og fyrr­ver­andi emb­ætt­is­manna í Banda­ríkj­unum en fyrir liggja gögn um sím­töl­in, tíma­setn­ingu þeirra og úr hvaða tækjum var hring­t. 



Ekki liggja hins vegar fyrir upp­lýs­ingar um hvert efni sím­tal­anna var og þá hefur Hvíta húsið ekki stað­fest frétt­irn­ar, en þeim hefur heldur ekki verið hafn­að. Trump heldur hins vegar áfram að gagn­rýna leka frá stjórn­kerfi lands­ins í Was­hington DC og nota Twitter til þess.





Mich­ael Flynn sagði í gær af sér sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi eftir að hann við­ur­kenndi að hafa greint vara­for­seta Banda­ríkj­anna, Mike Pence, rang­lega frá efni sam­tala sem hann átti við sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­un­um, Ser­­­gei Kis­lyak. Hann ræddi meðal ann­ars við hann við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum, en því hafði hann áður neit­að. 

Auglýsing

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI hefur Flynn nú til rann­sóknar vegna tengsla hans við Rússa og þeirra sam­skipta sem hann átti við Rússa. 

Sam­kvæmt New York Times og Was­hington Post skoða banda­rískar leyni­þjón­ustur nú hvort fram­boð Trumps hafi unnið með Rússum að tölvu­árásum á Demókra­ta­flokk­inn, þar á meðal tölvu­pósta Hill­ary Clinton og kosn­inga­stjóra henn­ar, með það fyrir augum að ýta undir líkur á því að Trump ynni í kosn­ing­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None