Arion banki kallar eftir upplýsingum um endanlega eigendur

Búið er að óska eftir upplýsingum um endanlega eigendur allra þeirra sem keyptu hlut í Arion banka og munu eiga umfram eitt prósent hlutafjár. Ekki er víst að sú umleitan skili neinu.

Arion banki
Auglýsing

Arion banki hefur óskað eftir því að fá upp­lýs­ingar um end­an­lega eig­endur þeirra aðila sem keyptu 29,18 pró­sent hlut í bank­anum um liðna helgi, og eiga umfram eitt pró­sent hluta­fjár. Þegar upp­lýs­ing­arnar ber­ast munu þær verða birtar á heima­síðu Arion banka. Þetta hefur Kjarn­inn fengið stað­fest hjá Arion banka.

Fjár­mála­eft­ir­litið sendi frá sér frétt í gær þar sem það vakti athygli á því að fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækjum beri að til­­­­­greina nöfn og hlut­­­falls­­­legt eign­­­ar­hald allra þeirra sem eiga umfram eitt pró­­­sent hluta­fjár á heima­­­síðu sinni. „Sé lög­­­að­ili eig­andi hluta­fjár umfram eitt pró­­­sent skal jafn­­­framt koma fram hvaða ein­stak­l­ingur eða ein­stak­l­ingar séu raun­veru­­­legir eig­endur við­kom­andi lög­­­að­ila.“

Jón Þór Sturlu­­son, aðstoð­­ar­­for­­stjóri eft­ir­lits­ins, sagði í tíu­fréttum RÚV í gær að Arion banki hefði fjóra daga til að upp­­­fylla þessa skyldu. Því eiga upp­lýs­ing­arnar að liggja fyrir í lok þess­arar viku.

Arion banki óskaði eftir því við nýja eig­endur sína, sem eru þrír vog­un­ar­sjóðir og Gold­man Sachs, að fá upp­lýs­ingar til að upp­fylla þessa laga­skyldu.

Auglýsing


Ekki víst að end­an­legir eig­endur verði gefnir upp

Það er þó ekki víst að þessi umleitan muni skila neinum upp­lýs­ingum um þá ein­stak­linga sem voru að kaupa sér stóran hlut í íslenskum við­skipta­banka.

Taconic, Och-Ziff, Attestor og Gold­man Sachs, sem keyptu sam­tals 29,18 pró­­sent hlut í Arion banka af Kaup­­þingi á 48,8 millj­­arða króna, eiga að mestu hlut­ina í gegnum sjóði. Í hverjum sjóði eru margir hlut­deild­ars­kirtein­is­hafar og til að hægt sé að rekja eign­ar­haldið á hlut­deild­ar­skír­teini áfram þarf ein­stak­lingur að eiga yfir tíu pró­sent í umræddum sjóði. Ef t.d. fjár­fest­inga­fé­lag á níu pró­sent af eignum umrædds sjóðs þá verður ekki hægt að rekja eign­ar­hald þess til þeirra ein­stak­linga sem eiga fjár­fest­inga­fé­lag­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None