Segja að mistök hafi átt sér stað við mengunarmælingar í Helguvík

Orkurannsóknir ehf. sem annast umhverfisvöktun við verksmiðju United Silicon í Helguvík segja að fyrri mælingar sem gefnar hafa verið út um innihald efna í ryksýnum í nágrenni við verksmiðjuna sé úr öllu samhengi við raunverulega losun frá United Silicon.

United Silicon ágúst 2017
Auglýsing

Orku­rann­sóknir ehf., fyr­ir­tæki sem ann­ast umhverf­is­vöktun við verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík, segir í yfir­lýs­ingu sem það hefur sent Umhverf­is­stofnun að mis­tök hafi verið gerð við meng­un­ar­mæl­ingar í Helgu­vík. Í til­kynn­ingu frá United Sil­icon segir að fyrri mæl­ingar sem gefnar hafi verið út um inni­hald þung­málma og PAH efna í ryk­sýnum í nágrenni við verk­smiðj­una séu úr öllu sam­hengi við raun­veru­lega losun frá fyr­ir­tæk­inu. „Ljóst sé að um mis­tök í mæl­ingum hafi verið að ræða.“ Í yfir­lýs­ingu Orku­rann­sóknar til Umhverf­is­stofn­unar segir að það þurfi að end­ur­skoða þurfi allar nið­ur­stöður ryk­mæl­inga frá árinu 2016 sem gerðar voru í mæli­stöð­inni við Hólm­bergs­braut í Helgu­vík.

Í yfir­lýs­ingu Orku­rann­sóknar kemur fram að nið­ur­stöður mæl­inga á ryk­sýnum sem tekin voru í mæli­stöð­inni við Hólm­bergs­braut hafi verið bornar saman við efna­grein­ingar á ryki frá útblæstri kís­il­verk­smiðju United Sil­icon og þær sýni allt að 67 sinnum meira magn þess­ara efna í ryk­sýn­unum en það sem mælist í ryki frá útblæstri verk­smiðj­unn­ar. Þar á meðal sé gildi arsens 27 sinnum meira í ryk­sýn­unum en hafi mælst í útblæstri verk­smiðj­unn­ar.

„Vísað er til þess að fyrri grein­ingar hafi sýnt að magn þung­málma hafi auk­ist mjög veru­lega frá sýnum sem tekin voru á fyrra tíma­bili mæl­inga frá mar­s-sept­em­ber 2016 og þar til í októ­ber-des­em­ber 2016. Hins vegar hafi starf­semi verk­smiðju United Sil­icon ekki byrjað fyrr en um miðjan nóv­em­ber. Því sé ekki hægt að tengja aukn­ingu í byrjun seinna tíma­bils til starf­semi kís­il­vers­ins. Ef skoð­aðar séu vindrósir frá þessum tíma sjá­ist að sunn­anáttir hafi verið ríkj­andi á þessum tíma en mæli­stöðin er sunnan við verk­smiðj­una.

Auglýsing

Í bréfi Orku­rann­sókna kemur fram að nú sé verið að kanna hvernig þessi mis­tök hafi átt sér stað en vitað sé að kerf­is­skekkja geti orðið við mæl­ingar þannig að 3-4 föld hækkun verði á öllum mæl­ing­um. Þá sé verið að rýna í mæl­ing­ar­ferlið í sam­ráði við rann­sókn­ar­stofu ALS í Sví­þjóð sem ann­ast efna­grein­ing­ar. Einnig eru Orku­rann­sóknir að fara yfir eigin verk­ferla til að kanna hvort hluta skekkj­unnar megi rekja til vinnu­ferla hjá þeim.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None