Ætlar ekki að taka þátt í sjónvarpskappræðum

Forsætisráðherrann ætlar að halda spilunum mjög nærri sér í kosningabaráttunni í aðdraganda þingkosninganna í Bretlandi. Engar sjónvarpskappræður munu fara fram.

Kosið verður til þings í Bretlandi í júní svo tryggja megi umboð stjórnvalda í Brexit-viðræðunum. Það fara hins vegar engar kappræður fram í kosningabaráttunni.
Kosið verður til þings í Bretlandi í júní svo tryggja megi umboð stjórnvalda í Brexit-viðræðunum. Það fara hins vegar engar kappræður fram í kosningabaráttunni.
Auglýsing

Ther­esa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og for­maður Íhalds­flokks­ins, lýsti því yfir í dag að hún hygð­ist ekki taka þátt í sjón­varp­s­kapp­ræðum í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna sem hún hefur lagt til að yrðu boð­að­ar.

­Þrátt fyrir að hafa ítrekað lýst því yfir að engar þing­kosn­ingar yrðu boð­aðar í kjöl­far Brex­it-­at­kvæða­greiðsl­unnar fyrr en kjör­tíma­bilið væri liðið árið 2020, þá óskaði May eftir því að breska þingið myndi greiða atkvæði með til­lögu hennar um að boðað yrði til kosn­inga 8. júní næst­kom­andi.

Þingið greiðir atkvæði um til­lög­una í dag og þurfa tveir þriðju­hlutar þing­heims að sam­þykkja hana svo kosn­ing­arnar verði haldn­ar. Jer­emy Cor­byn, leið­togi stjórn­ar­and­stöð­unnar og Verka­manna­flokks­ins, hefur sagst ætla að styðja þessa til­lögu.

„Við ætlum ekki að halda neinar sjón­varp­s­kapp­ræð­ur,“ sagði May í útvarps­við­tali í morg­un. „Ég vil kosn­inga­bar­áttu þar sem stjórn­mála­menn­irnir ræða augliti til auglitis við kjós­end­ur. Það er eitt­hvað sem ég hef alltaf trúað að sé best, og það er það sem ég trúi enn, og það er það sem ég ætla að gera í þess­ari kosn­inga­bar­átt­u.“

Í við­tal­inu í morg­un­þætt­inum Today á BBC 4 var May einnig spurð um hvað hafi valdið því að hún skipti um skoðun á snemm­búnum kosn­ing­um. Hún hafn­aði því að kosn­ing­arnar yrðu haldnar svo snemma til þess að gera mála­miðl­anir auð­veld­ari í Brex­it-við­ræð­un­um, eins og hún hefur sjálf gefið óbeint í skyn.

Auglýsing

Einu skýr­ing­arnar sem May hefur gefið fyrir því að kosn­ing­arnar séu haldnar svo snemma og með svo skömmum fyr­ir­vara eru að þær gætu treyst umboð stjórn­valda til þess að leiða við­ræð­urnar í þá átt sem ákveðin hefur ver­ið. Þær muni leiða af sér stöð­ug­leika til lengri tíma.

Íhalds­flokk­ur­inn undir stjórn Ther­esu May hefur und­an­farið mælst stærstur á lands­vísu í Bret­landi með nokkrum mun. Íhalds­menn mæl­ast með um 40-45 pró­sent stuðn­ing miðað við um 25 pró­sent stuðn­ing við Verka­manna­flokk­inn undir stjórn Jer­emy Cor­byn.



Séu leið­togar þess­ara tveggja stærstu flokka bornir saman og spurt hver yrði betri for­sæt­is­ráð­herra hefur May haft afger­andi yfir­burði gegn Cor­byn.



Síð­ustu þing­kosn­ingar voru haldnar í Bret­landi árið 2015 þegar Íhalds­flokk­ur­inn fékk 36,9 pró­sent atkvæða með David Cameron í for­ystu. Ed Milli­band leiddi þá Verka­manna­flokk­inn sem hlaut 30,4 pró­sent.

May var­ast það segja ekki of mikið um Brex­it-við­ræð­urnar sem geta nú haf­ist form­lega eftir að hún sendi form­lega beiðni um að Bretar fengju að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu í lok síð­asta mán­að­ar. Hún hefur gengið svo langt að segja að á meðan kosn­inga­bar­átt­unni stendur muni hún ekki veita neinar nýjar upp­lýs­ingar um gang við­ræð­anna.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, var í útvarpsviðtali á BBC í morgun.

Vef­miðlar í Bret­landi hafa keppst við að benda á hlut­verk fjöl­miðla þegar kemur að kosn­ing­um; kosn­ingar séu tæki­færi fyrir almenn­ing til þess að kynn­ast fram­bjóð­endum og grann­skoða þá kosti sem séu í boði svo hægt sé að taka upp­lýsta afstöðu í kjör­klef­an­um. „Þess vegna hreinsa dag­blöð og sjón­varps­stöðvar dag­skrá sína og eyða svo miklum tíma í kosn­ing­ar,“ skrifar Andrew Spar­row, stjórn­mála­frétta­rit­ari The Guar­dian í pistli sínum á vefn­um. „Kannski erum við bara að eyða tím­anum okk­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None