Lýsir yfir stríði gegn skattsvikurum

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, skar upp herör gegn skattsvikum á Íslandi á blaðamannafundi í ráðuneytinu fyrr í dag.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra
Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði skattsvik­urum „stríð á hend­ur“ á blaða­manna­fundi á Arn­ar­hváli fyrr í dag. Voru þar einnig kynntar til­lögur tveggja starfs­hópa með þau mark­mið að lág­marka skatt­svik og milli­verð­lagn­ingu.

Bene­dikt skip­aði fyrr í ár tvo starfs­hópa, annan um umfang milli­verð­lagn­ingar og fakt­úru­föls­unar en hinn um umfang skattsvika og skattaund­an­skota. Á fund­inum voru til­lögur beggja starfs­hópanna kynnt­ar, en þær stuðl­uðu allar að því að lág­marka skatt­svik á Íslandi. Fjöl­setið var á fund­in­um, en þar voru meðal ann­arra toll­stjóri, rík­is­skatts­stjóri og skatt­rann­sókn­ar­stjóri.

Bene­dikt sagði mikla með­vit­und vera um skattaund­an­skot í þjóð­fé­lag­inu: „Það er víða verið að skera upp herör geggn skattsvik­um. ASÍ og SA kynntu aðgerðir sínar gegn kenni­tölu­flakki, við höfum líka verið að kíkja í það. Einnig höfum við líka verið í sam­starfi við Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð, iðn­að­ar­-og nýsköp­un­ar­ráð­herra, í þeim efn­um.“

Auglýsing

Sam­fé­lags­legt tap hér á landi var metið á bil­inu 1-6 millj­arða íslenskra króna á hverju ári. Til­lögur hópanna voru fjöl­marg­ar, en þær fólu meðal ann­ars í sér aukið eft­ir­lit með óeðli­legri milli­verð­lagn­ingu og beita sektum ef þess þarf. Einnig var lagt til  að 10.000 króna seð­ill­inn verði tek­inn úr umferð strax og 5.000 króna seð­ill­inn einnig í náinni fram­tíð. Til þess að vega á móti minnkun seðla í umferð var einnig lagt til að hver ein­stak­lingur hafi inn­láns­reikn­ing í Seðla­banka sem væri ígildi reiðu­fjár.  

Þor­kell Sig­ur­laugs­son, fram­kvæmd­ar­stjóri nefnd­ar­innar um umfang skattsvika og skattaund­an­skota, lagði áherslu á hversu skað­leg skatt­svik eru og mik­il­vægi þess að beita for­virkum aðgerð­um: „ Það verður að byrgja í brunn­inn áður en barnið er dottið í hann. Skatt­svik er fíkn, og þeir sem stunda þetta halda áfram á að gera það. “Einnig benti hann á að þessar til­lögur væru lagðar fram með því mark­miði að þeim yrði beitt. „Þetta má ekki verða ein­hver skúffu­skýrsla.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent