Vill leyfa náttúrunni að njóta vafans

Arctic Circle-þingið var sett í fimmta sinn í morgun.

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra í starfsstjóirn og formaður Sjálfstæðisflokksins, ávarpaði Arctic Circle-þingið í Hörpu í dag.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra í starfsstjóirn og formaður Sjálfstæðisflokksins, ávarpaði Arctic Circle-þingið í Hörpu í dag.
Auglýsing

Norð­ur­slóðir eiga ekki að verða að hrað­braut milli heims­hluta og mann­kynið verður að standa vörð um nátt­úr­una, sagði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra í starfs­stjórn, í opn­un­ar­ræðu á Arctic Cir­le-­þing­inu í Hörpu í morg­un.

Bjarni sagði íslensk stjórn­völd stefna að því að draga úr losun útstreymis gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi um 40 pró­sent, eins og ákveðið hafi verið í aðdrag­anda Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins árið 2015. Hann sagði jafn­framt að Ísland ætlar að standa við Par­ís­ar­sam­komu­lagið að fullu.

Alþingi hefur þegar inn­leitt og stað­fest Par­ís­ar­sam­komu­lagið á Íslandi en enn hefur ekki verið samnið við Evr­ópu­sam­bandið um það sem er kallað „sann­gjörn hlut­deild“ í sam­eig­in­legu mark­miði Evr­ópu­sam­bands­ins sem Ísland og Nor­egur eru einnig hluti af.

Auglýsing

Vinna við nýja aðgerða­á­ætlun íslenskra stjórn­valda í lofts­lags­málum er í bið, eftir að rík­is­stjórn­ar­sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar féll 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og þar til ný rík­is­stjórn tekur ákvörðun um fram­haldið eftir kosn­ing­arn­ar.

Arctic Circle-­þingið hófst í Hörpu í Reykja­vík í dag, með ávarpi Ólafs Ragn­ars Gríms­son­ar, Bjarna Bene­dikts­sonar og Guðna Th. Jóhann­es­son­ar.

Í ávarpi sínu sagði Bjarni að stjórn­völd ríkja á norð­ur­slóðum verði að leyfa nátt­úr­unni að njóta vafans við ákvörð­un­ar­töku um nýt­ingu auð­linda.

Ólafur Ragnar er stjórn­ar­for­maður Arctic Circle sem nú er haldið í fimmta sinn. Árlega dregur þingið að áhrifa­fólk og þjóð­ar­leið­toga um allan heim. Meðal þeirra sem sækja þingið í ár eru Nicola Stur­ge­on, fyrsti ráð­herra skosku rík­is­stjórn­ar­inn­ar, Pat­ricia Espin­osa, fram­kvæmda­stjóri lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, Ségloène Royal, heim­skauta­sendi­herra Frakk­lands.

Eins og nafn þings­ins gefur til kynna þá eru mál­efni norð­ur­slóða til umræðu á Arctic Circle-­þing­inu. Bráðnun heim­skauta­íss­ins er ein helsta birt­ing­ar­mynd lofts­lags­breyt­inga í heim­in­um. Ólafur Ragnar segir í við­tali við Kjarn­ann að ef bar­áttan á norð­ur­slóðum tap­ast þá tap­ist einnig bar­áttan í lofts­lags­mál­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent