Reykjavíkurborg fjárfestir í innviðum og þjónustu fyrir 18 milljarða á þessu ári, sem er það mesta á einu ári í sögu borgarinnar. Á næstu fimm árum mun borgin fjárfesta í innviðum fyrir 70 milljarða. Sé horft til samstæðu Reykjavíkurborgar nemur fjárfesting næstu ára 226 milljörðum næstu fimm árin.
Þetta kom fram í kynningu á framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar og greint frá í frétt Reykjavíkurborgar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var gestur á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins í dag.
Í fréttinni segir að fjárfestingar ársins skiptist í grunninn í þrennt. Um 8 milljörðum verði ráðstafað í fasteignir og stofnbúnað, nær 8,5 milljarðar fari í götur og umhverfisframkvæmdir og rúmir 2 milljarðar í aðrar fjárfestingar.
„Bróðurparturinn af framkvæmdafé fasteigna fer til skóla- og frístundasviðs eða nær 2,8 milljarðar og þá fer 1,8 milljarður til íþrótta- og tómstundamála. Stærsta einstaka framkvæmdin er leik- og grunnskóli í Úlfarsárdal. Nánar um einstök verkefni má sjá í kynningu borgarstjóra.
Nýbyggingahverfi eru svo stærsti einstaki liðurinn í gatna- og umhverfisfjárfestingum en til þeirra mála fara rúmlega 2,5 milljarðar, en þar undir fellur gatnagerð á Hlíðarenda, Vogabyggð, Úlfarsárdal, Kirkjusandi og við Landspítala. Undir gatna- og umhverfisfjárfestingar falla einnig malbikunarframkvæmdir, en í sumar verður slegið met í malbikun gatna,“ segir í fréttinni.