Miklar fjárfestingar fyrirhugaðar í Reykjavík

Reykjavíkurborg mun fjárfesta í innviðum og þjónustu fyrir 18 milljarða árið 2018.

Reykjavík
Reykjavík
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg fjár­festir í innviðum og þjón­ustu fyrir 18 millj­arða á þessu ári, sem er það mesta á einu ári í sögu borg­ar­inn­ar. Á næstu fimm árum mun borgin fjár­festa í innviðum fyrir 70 millj­arða. Sé horft til sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar nemur fjár­fest­ing næstu ára 226 millj­örðum næstu fimm árin.

Þetta kom fram í kynn­ingu á fram­kvæmda­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar og greint frá í frétt Reykja­vík­ur­borg­ar. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri var gestur á Útboðs­þingi Sam­taka iðn­að­ar­ins í dag.

Í frétt­inni segir að fjár­fest­ingar árs­ins skipt­ist í grunn­inn í þrennt. Um 8 millj­örðum verði ráð­stafað í fast­eignir og stofn­bún­að, nær 8,5 millj­arðar fari í götur og umhverf­is­fram­kvæmdir og rúmir 2 millj­arðar í aðrar fjár­fest­ing­ar.

Auglýsing

„Bróð­ur­part­ur­inn af fram­kvæmdafé fast­eigna fer til skóla- og frí­stunda­sviðs eða nær 2,8 millj­arðar og þá fer 1,8 millj­arður til íþrótta- og tóm­stunda­mála. Stærsta ein­staka fram­kvæmdin er leik- og grunn­skóli í Úlf­arsár­dal. Nánar um ein­stök verk­efni má sjá í kynn­ingu borg­ar­stjóra.

Nýbygg­inga­hverfi eru svo stærsti ein­staki lið­ur­inn í gatna- og umhverf­is­fjár­fest­ingum en til þeirra mála fara rúm­lega 2,5 millj­arð­ar, en þar undir fellur gatna­gerð á Hlíð­ar­enda, Voga­byggð, Úlf­arsár­dal, Kirkju­sandi og við Land­spít­ala. Undir gatna- og umhverf­is­fjár­fest­ingar falla einnig mal­bik­un­ar­fram­kvæmd­ir, en í sumar verður slegið met í mal­bikun gatna,“ segir í frétt­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent