Stéttarfélög, atvinnurekendur og stjórnvöld þurfa að bregðast við #metoo-umræðunni og grípa tafarlaust til aðgerða. Þetta er niðurstaða fjölmenns fundar #metoo-kvenna sem bandalög stéttarfélaga og Kvenréttindafélag Íslands stóðu fyrir nýverið.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá BSRB.
Ein ályktunin sem dregin var á fundinum er sú að nú verði að hætta að laga konurnar sjálfar og nauðsynlegt sé að laga samfélagið í staðinn. Allir verði að taka þátt í byltingunni til að ná fram breytingum.
Í skýrslu sem unnin hefur verið upp úr ábendingum fundargesta, sem komu úr fjölmörgum #metoo-hópum kvenna, kemur fram sú krafa að allir taki þátt í því að laga samfélagið. Á fundinum, sem fór fram með þjóðfundarsniði, komu fram ábendingar sem bandalögunum og Kvenréttindafélaginu var falið að fylgja eftir. Það munu þau gera í sinni starfsemi og gagnvart stjórnvöldum og atvinnurekendum, segir í tilkynningunni.
Komist var að ýmsum niðurstöðum á fundinum en þær helstu voru að atvinnurekendur þurfi að axla ábyrgð, vera virkir í umræðunni og grípa til sýnilegra aðgerða á vinnustöðum með þátttöku allra starfsmanna. Efla þurfi fræðslu og umræðu um heilbrigð samskipti, mörk og meðvirkni.
Stéttarfélög eiga jafnframt að vera leiðandi í umræðunni, virkja trúnaðarmenn og heimsækja vinnustaði. Einnig eiga þau að styðja þolendur innan vinnustaða. Stjórnvöld þurfa að breyta jafnréttislögum þannig að heimilt verði að sekta vinnustaði sem ekki sinna forvörnum og upprætingu kynbundinnar áreitni, kynferðislegrar áreitni og annars ofbeldis á vinnustöðum.