Ríkisháskólinn í Michigan borgar 50 milljarða til fórnarlamba Nassars

Larry Nassar braut kynferðislega gegn 332 stúlkum, meðan hann starfaði við Michigan State University. Samkomulag hefur náðst um himinháa greiðslu.

larrynassar270118
Auglýsing

Rík­is­há­skól­inn í Michigan (Michigan State Uni­versity) hefur sam­þykkt að greiða 332 fórn­ar­lömbum kyn­ferð­is­af­brota­manns­ins Larry Nass­ar, sem um tíma var læknir banda­ríska lands­liðs­ins í fim­leik­um, 500 millj­ónir Banda­ríkja­dala í bæt­ur, eða sem nemur um 50 millj­arða króna. 

Nassar starf­aði lengi við skól­ann, og braut gegn mörg hund­ruð stúlkum meðan hann sinnti starfi sínu.

Frá þessu var greint í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu skól­ans og lög­mannateymis fórn­ar­lambanna í dag. Í frá­sögn New York Times kemur fram að vel­gjörð­ar­sjóðir skól­ans (Tru­stees) muni sjá um að greiða bæt­urn­ar, en ekki hefur ennþá verið gengið frá fjár­mögnun á þess­ari upp­hæð. 

Auglýsing

John Man­ly, aðal­lög­maður fórn­ar­lamba Nass­ars, segir að bóta­greiðslan hafi verið ákveð­in, eftir gíf­ur­lega erf­ið­leika sem fórn­ar­lömbin hafi þurft að ganga í gegn­um. „Það þurfti hug­rekki meira en 300 kvenna til að stöðva brot­in,“ sagði Man­ly. 



Hann seg­ist bera þá von eft­ir­lif­andi fórn­ar­lamba Nass­ars í brjósti, að þessi bóta­greiðsla - og málið allt - muni skapa for­dæmi fyrir aðra sem hafa verið í sam­bæri­legri stöðu, og leiða til þess að kyn­ferð­is­brot í íþrótt­um, skólum og ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu verði ekki liðin eða þögguð nið­ur. 

Nassar hefur þegar hlotið þrjá lífs­tíð­ar­dóma fyrir brot sín, og fang­els­is­refs­ing hefur í þeim verið á bil­inu 40 til 125 ára fang­elsi. Hann mun að lík­indum deyja í fang­elsi, þar sem mögu­leiki á reynslu­lausn er ekki fyrir hendi á næst­unn­i. 

Nassar er 54 ára gam­all. Upp komst um brot hans, þegar stúlkur sem hann hafði brotið gegn stigu fram, ein af ann­arri, og lýstu hrika­legum brotum hans og afleið­ingum þeirra. 

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan rann­sak­aði glæpi hans og var hann ákærður að lok­um, í þremur mis­mund­andi mál­um. Auk þess að vera dæmdur fyrir ítrekuð kyn­ferð­is­brot gagn­vart stúlk­um, var hann einnig dæmdur fyrir að vera með barna­klár í vörslu sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent