Bæta þarf verklag við veitingu ívilnana og starfsleyfa

Bæta þarf verklag og auka kröfur við gerð ívilnunarsamninga um nýfjárfestingar, mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og útgáfu starfsleyfa. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á kísilverksmiðju United Silicon.

Mynd: United Silicon
Auglýsing

Bæta þarf verk­lag og auka kröfur við gerð íviln­un­ar­samn­inga um nýfjár­fest­ing­ar, mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda og útgáfu starfs­leyfa. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, Kís­il­verk­smiðja Sam­ein­aðs Síli­kons hf. – Aðkoma og eft­ir­lit stjórn­valda, sem unnin var að beiðni Alþing­is.

Í skýrsl­unni er alls sjö ábend­ingum beint til atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is, umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­is, Skipu­lags­stofn­un­ar, Umhverf­is­stofn­unar og Vinnu­eft­ir­lits rík­is­ins.

Fram kemur að mik­il­vægt sé að stofn­anir rík­is­ins sem koma að útgáfu starfs­leyfa og gerð íviln­un­ar­samn­inga geti sann­reynt getu þeirra sem sækj­­ast eftir því að starf­rækja meng­andi iðn­­að til að upp­fylla skil­yrði slíks rekstrar og sann­gildi þeirra upp­lýs­inga sem þeir leggja fram.

Auglýsing

„Kís­il­verk­smiðja Sam­ein­aðs Síli­kons var ekki full­búin þegar fram­leiðsla hófst og starf­aði aldrei í sam­ræmi við mat á umhverf­is­á­hrif­um, starfs­leyfi og mark­mið samn­ings um íviln­an­ir. Rík­is­end­ur­skoðun telur brýnt að umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyti kanni, í sam­­starfi við Umhverf­is­stofnun og önnur stjórn­­völd, hvort herða þurfi eða skýra kröf­ur við útgáfu starfs­leyfa vegna starf­­semi sem getur haft mengun í för með sér,“ segir Rík­is­end­ur­skoðun.

Ekki var gert ráð fyrir lykt­ar­mengun við mat á umhverf­is­á­hrifum kís­il­verk­smiðj­unnar og er sú mengun sem kom fram ekki að fullu skýrð, utan hvað ljós­boga­ofn verk­smiðj­unnar var óstöð­ug­ur.

Rík­is­end­ur­skoðun telur mik­il­vægt að Skipu­lags­stofnun kanni hvort og þá hvernig taka megi á hugs­an­legum frá­vikum í rekstri við mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda, sér­stak­lega þegar nálægð við íbúða­byggð er mik­il. Þá telur Rík­is­end­ur­skoðun að Skipu­lags­tofnun hefði átt að taka fram í áliti sínu að ekki var brugð­ist við athuga­semdum um skort á reyk­háf­um. Rík­is­end­ur­skoðun hvetur til þess að kannað verði hvort gera eigi strang­ari kröfur við mat á umhverf­is­á­hrif­um.

Auk lykt­ar­meng­unar voru sjón­ræn áhrif önnur og meiri en gert hafði verið ráð fyr­ir. Þá var bygg­ing kís­il­verk­smiðj­unnar ekki í sam­ræmi við gild­andi svæð­is­skipu­lag. Rík­is­end­ur­skoðun telur þetta gagn­rýni­vert og bendir á að ástæða sé til að kanna hvort Skipu­lags­stofnun þurfi skýr­ari og bein­skeytt­ari úrræði þegar fram­kvæmdir eru ekki sam­ræmi við mat á umhverf­is­á­hrif­um.

Rík­is­end­ur­skoðun telur að vanda þurfi betur til grein­inga sem ákvarð­anir um veit­ingu íviln­ana byggja á. Við gerð íviln­un­ar­samn­ings við Sam­einað Síli­kon var alfarið byggt á fram­lögðum gögnum og upp­lýs­ingum umsækj­enda. Við afgreiðslu á umsókn um ívilnun lágu ekki fyrir skýrar upp­lýs­ingar um eign­ar­hald og stjórn­end­ur. Íviln­un­ar­samn­ingur við Sam­einað Síli­kon gerði ráð fyrir að hámark styrk­hæfrar rík­is­að­stoð­ar, fyrir utan mögu­lega þjálf­un­ar­styrki starfs­fólks, yrði 484,8 millj­ónir króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent