Fyrsti borgarstjórnarfundur á nýju kjörtímabili er haldinn í Ráðhúsinu í dag en hann hófst kl. 14. Nýr meirihluti Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna var kynntur þann 12. júní síðastliðinn og samhliða var meirihlutasáttmála þeirra fjögurra flokka sem hann mynda dreift.
Á fundinum verður kosið í ráð og nefndir og tillögur flokkanna teknar fyrir. Á dagskrá fundarins er Sósíalistaflokkurinn með sjö tillögur, Miðflokkurinn eina, Flokkur fólksins eina og Sjálfstæðisflokkurinn eina. Jafnframt verða siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg lagðar fram á fundinum og undirritaðar.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendinu á vef Reykjavíkurborgar.
Sósíalistaflokkurinn með sjö tillögur
Fjallað hefur verið um tillögur Sósíalistaflokksins í fjölmiðlum undanfarna daga en meðal þeirra er tillaga um afnám þóknunar fyrir nefndarsetu starfsmanna borgarinnar fyrir fundi á vinnutíma.
„Það hefur eitthvað farið alvarlega aflaga í stjórnmálum þegar borgarstjóri Reykjavíkur og bæjarstjórar nágrannasveitarfélagana eru farnir að taka sér hærri laun en borgarstjórar New York, London og París,“ sagði Sanna Magdalena Mörtudóttir í tilkynningu frá flokknum sem send var út þann 17. júní síðastliðinn. „Við ættum að horfast í augu við að þessi laun afhjúpa spillingu stjórnmálaforystunnar og við ættum að gera eitthvað í því. Fyrsta skrefið ætti að vera að banna þessu fólki að taka þóknanir fyrir fundi sem það situr í vinnutíma sinnar aðalvinnu og sem eru því augljóslega hluti af þeim starfsskyldum sem það fær greitt fyrir af föstu launum.“
Í tilkynningunni segir jafnframt að sveitarstjórar á höfuðborgarsvæðinu hafi setið fimm fundi stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í fyrra og þegið fyrir það tæpar 11 milljónir króna. „Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er formaður stjórnarinnar og fékk rúmar 205 þúsund krónur á mánuði að launum eða tæplega 2,5 milljónir króna yfir árið. Deilt niður á fundi gera það rúmlega 492 þúsund krónur fyrir hvern fund. Samkvæmt fundargerðum stóðu fundirnir í einn til tvo tíma. Tímakaup Dags er því nærri 330 þúsund krónum að meðaltali,“ segir í tilkynningunni.
Enn fremur leggur Sanna fram tillögu að Reykjavíkurborg eyði verðhækkunaráhrifum byggingarréttargjalds á félagslegar íbúðir og íbúðir sem byggðar eru af óhagnaðardrifnum leigufélögum. Hingað til hafi verið lagt 45 þúsund króna byggingarréttargjald á hvern fermetra þessara íbúða og komi það að stóru leyti á móti því 12 prósent stofnframlagi sem borgin leggur til byggingarsamvinnufélaga. „Því má segja að borgin leggi lítið sem ekkert til uppbyggingar íbúða sem ætlaðar eru fólki sem getur ekki keypt eða leigt á hinum óhefta markaði,“ segir Sanna. „Það sem borgin leggur til fer að mestu í að borga gjöld til borgarinnar, til dæmis lóða- og byggingarréttargjöld.“
Sanna telur að flatt 45 þúsund króna byggingarréttargjald sé óréttlát skattheimta. Af verði 70 fermetra íbúðar, sem kostar 25 milljón króna, sé byggingarréttargjaldið rúmlega 3,1 milljón króna eða 12,6 prósent af verðinu. Gjaldið vegi miklum mun minna í verði lúxusíbúða. Svo dæmi sé tekið séu nýkomnar í sölu dýrar lúxusíbúðir við Tryggvagötu. Það kosti 166 fermetra íbúð 143 milljónir króna. Af því sé byggingarréttargjaldið tæpar 7,5 milljónir króna eða rúmlega 5 prósent af verðinu.
Aðrar tillögur borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins fjalla um stofnun félags strætófarþega, um stofnun félags skjólstæðinga velferðarsviðs, um stofnun félags leigjenda hjá Félagsbústöðum, um könnun á umfangi útvistunar og áhrifum hennar á kjör launafólks og um breytingar á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Flokkur fólksins leggur fram tillögu um rekstrarúttekt á Félagsbústöðum, Miðflokkurinn tillögu um niðurfellingu byggingarréttargjalds og Sjálfstæðisflokkurinn um aðgerðir í húsnæðismálum.
Þórdís Lóa formaður borgarráðs
Fram hefur komið í fréttum að Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingar muni halda áfram sem borgarstjóri Reykjavíkur. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar verður formaður borgarráðs og Pawel Bartoszek annar maður á lista Viðreisnar verður forseti borgarstjórnar í 3 ár en Dóra Björt Guðjónsdóttir oddviti Pírata mun gegna því hlutverki í eitt ár. Hún verður einnig formaður í sameinuðu mannréttinda- og lýðræðisráði. Líf Magneudóttir oddviti vinstri grænna verður varaformaður borgarráðs og formaður nýs ráðs umhverfis- og heilbrigðismála. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir annar fulltrúi Pírata verður formaður samgöngu- og skipulagsráðs.
Skúli Helgason hjá Samfylkingu verður áfram formaður skóla- og frístundaráðs og Heiða Björg Hilmisdóttir einnig hjá Samfylkingu verður formaður velferðarráðs. Þá verður Pawel formaður menningar- og íþróttaráðs fyrsta árið en Hjálmar Sveinsson tekur svo við.