Lagerbäck heldur með Íslandi gegn Nígeríu

Fyrrum landsliðsþjálfari Íslands og Nígeríu heldur með Íslandi í leik dagsins á HM.

Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.
Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.
Auglýsing

Lars Lag­er­bäck sagði Ísland vera í upp­á­haldi í leik liðs­ins gegn Nígeríu í við­tali við SVT fyrr í dag. Þjálf­ar­inn, sem sam­kvæmt miðl­inum er bæði kall­aður „Lasse Lagos“ og „Lassa Lava“, kom lands­liði Nígeríu á þar­síð­asta heims­meist­ara­mót í Suð­ur­-Afr­íku árið 2010. 

SVT Sport tók við­tal við Lag­er­bäck og innti þjálf­ar­ann eftir svörum um hvort liðið hann myndi halda með í leik dags­ins og fékk afger­andi svar. „Það er ljóst að maður hefur til­finn­ingar til beggja liða þar sem maður hefur þjálfað hjá þeim, en ég var jú hjá Íslandi mun lengur og þekki starfs­menn­ina og leik­menn­ina þar mjög vel á meðan heilt yfir litið er eng­inn leik­maður eftir frá minni tíð í Níger­íu,“ segir þjálf­ar­inn. 

Meiri liðs­heild hjá Íslandi

Lag­er­bäck tók við þjálf­ara­hlut­verki níger­íska lands­liðs­ins árið 2010, rétt fyrir HM í Suð­ur­-Afr­íku, en fór með þá beint í umspil fyrir mót­ið. Stuttu síðar lét svo Lag­er­bäck af störfum og byrj­aði sem lands­liðs­þjálf­ari Íslands. 

Auglýsing

Lag­er­bäck bætir við að leikstíll íslenska lands­liðs­ins beri enn keim af þjálf­ara­tíð hans, á meðan leikstíll níger­íska liðs­ins hafi gjör­breyst frá árinu 2010: „Ní­ger­íska liðið byggir meir á færni ein­stak­linga, en Ísland býr yfir meiri liðs­heild, jafn­vel þótt  ég hafi ekki 100% hug­mynd um hvernig Nígería spilar nú til dags.“ 

Jafn leikur

Þrátt fyrir ólíkan stíl lið­anna heldur Lag­er­bäck að leik­ur­inn verði mjög jafn. „Þetta eru tvö lið sem spila með ólíkum hætti, en leik­ur­inn kemur örugg­lega til með að verða nokkuð jafn þrátt fyrir það,“ segir þjálf­ar­inn. Þegar blaða­maður spyr hvort liðið hann haldi að muni vinna ítrekar Lars: „Ís­land er í svolitlu upp­á­haldi, jafn­vel þótt ég haldi að þetta muni verða jafn leik­ur.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent