Tyrkir fangelsa flesta blaðamenn

Ekkert land hefur sett fleiri blaðamenn á bak við lás og slá en Tyrkland, samkvæmt yfirlýsingu frá Amnesty International.

Mótmæli á Taksim-torgi í Istanbul 2013.
Mótmæli á Taksim-torgi í Istanbul 2013.
Auglýsing

Tyrk­land fang­elsar fleiri blaða­menn en nokkur önnur þjóð í heimi, en landið hefur að geyma um þriðj­ung allra blaða­manna heims sem eru á bak við lás og slá. Þetta kemur fram í nýrri her­ferð Amnesty International fyrir frjálsri fjöl­miðlun í Tyrk­land­i. 

Sam­kvæmt Amnesty er tján­ing­ar­frelsi í Tyrk­landi í stöðugri og vax­andi hættu, en allt frá valda­ránstil­raun tyrk­neska hers­ins í júlí 2016 eiga fræði­menn, blaða­menn og rit­höf­undar sem eru gagn­rýnir á stjórn­völd þar í landi hættu á lög­sókn, hót­un­um, áreiti og rit­skoð­un. 

Í kjöl­far valda­ránstil­raun­ar­innar setti rík­is­stjórnin á neyð­ar­lög í land­inu sem leiddi meðal ann­ars til lok­unar á 180 fjöl­miðl­um. Í her­ferð Amnesty er aðgerðum tyrk­neskra stjórn­valda lýst sem „dauða blaða­mennsku.“Þar er einnig kraf­ist enda­loka neyð­ar­stjórn­ar­innar í Tyrk­landi auk lausnar fang­els­aðra blaða­manna og þeirra sem sitja í varð­haldi fram að rétt­ar­höld­um. 

Auglýsing

Krist­inn Hrafns­son blaða­maður bendir á ákallið í stöðu­upp­færslu á Face­book og segir árangur rit­skoð­un­ar­stefnu tyrk­nesku rík­is­stjórn­ar­innar mega sjá í úrslitum kosn­inga helg­ar­inn­ar. Kjarn­inn fjall­aði um þau úrslit fyrr í dag, en þar fékk flokkur Recep Tayyip Erdogan, for­seta Tyrk­lands, 52,5 pró­sent atkvæða og var hann því end­ur­kjör­inn. 

Tyrk­land og EFTA-­ríkin und­ir­rit­uðu upp­færðan frí­versl­un­ar­samn­ing á milli sín í Skaga­firði í morgun, en þar héldu Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Nihat Zey­bekci, efna­hags­mála­ráð­herra Tyrk­lands, tví­hliða fund. Á fund­inum var meðal ann­ars rætt um mann­rétt­indi og mál Hauks Hilm­ars­sonar sem tal­inn er hafa fallið í hern­aði Tyrkja í Afr­in-hér­aði fyrr á þessu ári.   

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent