Trump sigri hrósandi þrátt fyrir mótsögn

Bandaríkjaforseti sagðiNATO-ríki hafa samþykkt skilyrði hans um hraðari útgjaldahækkun aðildarríkja, þrátt fyrir að hafa skrifað undir yfirlýsingu um hið gagnstæða.

Trump hefur löngum gagnrýnt útgjöld NATO-ríkja til varnarmála.
Trump hefur löngum gagnrýnt útgjöld NATO-ríkja til varnarmála.
Auglýsing

Don­ald Trump ­Banda­ríkja­for­seti sagði fyrr í dag að með­limir Atl­ants­hafs­banda­lags­ins höfðu fall­ist á kröfu hans um að auka fjár­fram­lög ríkj­anna til hern­að­ar­mála, þrátt fyrir að hafa skrifað undir sam­þykkt á óbreyttu ástandi. Þetta gerði for­set­inn fyrr í dag á leið­toga­fundi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, en New York Times og Guar­dian greina frá mál­inu.

Kjarn­inn fjall­aði í gær um yfir­stand­andi leið­toga­fund aðild­ar­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, en hann fór fram í dag og í gær í Brus­sel. Trump hóf fund­inn í gær með harðri gagn­rýni á við­skiptum Þýska­lands við Rúss­land ann­ars vegar og lít­illa útgjalda ann­arra að­ild­ar­þjóða til varn­ar­mála hins veg­ar. 

Fyrr í morgun hélt Trump svo áfram gagn­rýni sinni á varn­ar­mála­út­gjöld, en með því setti morg­un­fund vegna vænt­an­legrar inn­limunar Georgíu og Úkra­ínu í sam­bandið úr skorð­um.

Auglýsing

Í kjöl­farið var svo boðið til neyð­ar­fundar vegna fjár­mála banda­lags­ins, en sam­kvæmt Banda­ríkja­for­seta bar hann mik­inn árang­ur. Á blaða­manna­fundi í höf­uð­stöðv­um NATO ­fyrr í dag sagð­i Trump fund­inn hafa verið „frá­bæran“ og að aðild­ar­ríki hafi sam­þykkt að auka útgjöld sín með hrað­ari hætti en áður var ákveð­ið. Fyrri sam­þykktir banda­lags­ins mið­uðu að útgjalda­aukn­ingu þeirra með­lima NATO ­sem enn höfðu ekki lagt fram 2% af lands­fram­leiðslu til varn­ar­mála, en þjóð­irnar sam­þykktu að stefna að  því marki árið 2024. 

Trump hefur gagn­rýnt stefnu banda­lags­ins og kraf­ist þess að 2% mark­inu yrði strax mætt, en for­set­inn lét einnig í veðri vaka að með­lim­ir Nato ættu að ná fjög­urra pró­senta mark­inu í fram­tíð­inn­i. 

Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar sínar á blaða­manna­fund­inum um hrað­ari útgjalda­aukn­ingu skrif­að­i Trump hins vegar undir sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu allra 29 að­ild­ar­þjóða NATO ­sem ítrek­aði fyrri áætl­anir um 2% útgjalda­mark fyrir árið 2024. 

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sótti leið­toga­fund­inn sem stóð yfir í gær og í dag, en sam­kvæmt frétt Stjórn­ar­ráðs­ins ræddi hún sér­stak­lega um nauð­syn þess að efla þró­un­ar­að­stoð, mann­úð­ar­að­stoð og stuðn­ing við flótta­fólk innan sam­bands­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent