Icelandair hefur tapað 6,4 milljörðum í ár

Tap flugfélagsins er þrefalt hærra en það var á fyrri árshelmingi í fyrra.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair.
Auglýsing

Tap Icelanda­ir á öðrum árs­fjórð­ungi nam 2,7 millj­örðum íslenskra króna, en það sem af er ári hefur flug­fé­lagið alls tapað 6,4 millj­örð­um. Ef miðað er við sama tíma­bil í fyrra hefur tap félags­ins rúm­lega þre­fald­ast milli ára. Þetta kemur fram í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri félags­ins.

Sam­kvæmt upp­gjör­inu juk­ust heild­ar­tekjur um 9% milli ára og náðu 399 millj­ónum Banda­ríkja­dala sam­an­borið við 367,3  millj­ónir dala árið áður. Aftur á móti jókst kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins enn meira, eða um 18%, úr 326,7 millj­ónum dala í fyrra upp í 384,213 millj­ónir dala í ár. Þar vó hæst almennur flug­kostn­að­ur, en launa­kostn­aður félags­ins jókst einnig nokk­uð. 

Á öðrum árs­fjórð­ungi nam tap félags­ins 25,7 millj­ónum dala, í sam­an­burði við 9,9 milljón dala hagnað á sama tíma­bili í fyrra. Ef litið er á fyrri árs­helm­ing­inn 2018 er tap flug­fé­lags­ins 60,3 millj­ónir Banda­ríkja­dala, sem jafn­gildir 6,4 millj­örðum íslenskra króna. Til sam­an­burðar var tap Icelanda­ir á fyrri árs­helm­ingi 2017 ein­ungis 20 millj­ón­ir ­Banda­ríkja­dala, eða 2,1 millj­arðar íslenskra króna.

Auglýsing

Hærra skulda­hlut­fall

Sam­hliða auknum halla félags­ins hefur efna­hags­reikn­ing­ur­inn einnig stækkað nokkuð það sem af er ári, með meiri eignum og skuldum en undir lok síð­ast­lið­ins des­em­ber­mán­að­ar. Skulda­hlut­fall þeirra hefur einnig hækkað nokkuð milli árs­helm­inga, en nú nema skuldir félags­ins um 68% af eign­um, í sam­an­borið við 58% undir lok árs 2017.

Í til­kynn­ingu sem fylgdi birt­ingu upp­gjörs­ins í Kaup­höll­inni sagði Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelanda­ir, sam­keppn­ina á mörk­uðum sjaldan hafa verið meiri. Einnig sagði hann félagið hafa unnið að viða­miklum breyt­ingum á félag­inu á tíma­bil­inu, meðal ann­ars sölu á hót­el­rekstur félags­ins og kaup á nýj­u­m ­Boein­g MAX flug­vél­um. Björgólfur telur félagið í góðri stöðu til að takast á við áskor­anir og nýta tæki­færi sem upp kunna að koma við slíkar aðstæð­ur.

Kjarn­inn fjall­aði um erf­ið­leika Icelandair á hluta­bréfa­mark­aði fyrr í dag, en verð­miði félags­ins er kom­inn langt undir eigið fé. Hann nemur nú um 40 millj­örðum króna, en fór hæst í 180 millj­arða króna fyrir skömmu síð­an. Félagið er að stærstum hluta í almenn­ings­eigu í gegnum eign­ar­hlut­deild líf­eyr­is­sjóð­anna. 

Í fyrra­málið fer svo fram kynn­ing­ar­fundur kl. 08:30 á Icelandair Hotel Reykja­vík Natura. Þar munu Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group og Bogi Nils Boga­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála, kynna afkom­una og svara spurn­ingum ásamt öðrum stjórn­endum félags­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent