Mannréttindalögfræðingur handtekinn

Nasrin Sotoudeh hefur verið fangelsuð fyrir það að taka að sér mál konu sem mótmælti því að þurfa að ganga með slæðu í Íran.

Nasrin Sotoudeh
Nasrin Sotoudeh
Auglýsing

Nasrin Sotou­deh mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur hefur verið fang­elsuð fyrir það að taka að sér mál konu sem mót­mælti því frið­sam­lega að þurfa að ganga með slæðu – þ.e. hijab – í Íran. Nú á hún yfir höfði sér fimm ára dóm fyrir að „dreifa áróðri gegn kerf­inu“ og að „leggja á ráðin gegn þjóðar­ör­ygg­i“.

Frá þessu er greint á vef­síðu Amnesty á Íslandi en nú stendur yfir netá­kall þar sem þess er kraf­ist að hún verði skil­yrð­is­laust leyst úr haldi.

Sam­kvæmt Amnesty braust út hreyf­ing árið 2017 sem berst gegn því að konur í Íran séu skyld­aðar til að ganga með slæð­ur. Þá setti kona á svið tákn­rænan gjörn­ing sem fól í sér mót­mæli gegn þess­ari kvöð en það gerði hún með því að taka af sér slæð­una og setja á stöng sem hún veif­aði hljóða­laust. Fjöldi kvenna í Íran fóru að for­dæmi hennar og mót­mæltu með sama hætti.

Auglýsing

Kon­urnar sem þekktar eru sem „Stelp­urnar af Bylt­ing­ar­stræti” hafa nú allar verið lög­sótt­ar.

Í umfjöllun Amnesty segir að með því að hand­taka og fang­elsa Nasin hafi yfir­völd í Íran komið í veg fyrir að þær hafi aðgang að áhrifa­ríkum og reynslu­miklum lög­manni.

„Konur eiga að geta ákveðið hverju þær klæð­ast og lög­fræð­ingar ættu að geta varið rétt­indi þeirra. Þar sem Nasrin er fyr­ir­munað að verja kon­urnar frá því að fara í fang­elsi, hyggst hún halda mót­mælum sínum áfram á bak við lás og slá með því að fjar­lægja af sér höf­uð­slæð­una þangað til henni er sleppt úr hald­i,“ segir í umfjöllun Amnesty.

Nasrin hefur áður verið hand­tekin en árið 2010 var hún dæmd í sex ára fang­elsi fyrir störf sín en sat inni í þrjú ár. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent