Meirihluti íbúa Reykjavíkur er verulega jákvæður gagnvart göngugötum í miðborginni, samkvæmt niðurstöðum nýrrar viðhorfskönnunar Maskínu sem framkvæmd var fyrir umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur.
Alls segjast 71 prósent svarenda jákvæðir gagnvart göngugötunum en 11 prósent eru neikvæðir.
Jákvæðnin eykst eftir því sem fólk fer oftar á göngugötusvæðið og eru íbúar í Miðborg og Hlíðum jákvæðastir allra. Ekki er mikill munur á afstöðu kynjanna til göngugatnanna þó eru fleiri karlar en konur sem eru mjög jákvæðir með þetta fyrirkomulag.
Alls telja 77 prósent íbúa að göngugöturnar hafi jákvæð áhrif á mannlífið í miðborginni en 8 prósent telja að þær hafa neikvæð áhrif.
Eftirfarandi götum hefur verið breytt í göngugötur undanfarin ár: Laugavegi og Bankastræti, milli Vatnsstígs og Þingholtsstrætis. Skólavörðustíg milli Bergstaðastrætis og Laugavegar. Austurstræti, Veltusundi og Vallarstræti. Pósthússtræti, milli Kirkjustrætis og Hafnarstrætis.
Aðspurðir um tímabil göngugatna, frá 1. maí til 1. október, segja tæplega 40 prósent að tímabilið sé hæfilega langt, 30 prósent vilja lengja tímabilið og 30 prósent vilja stytta það.
Mun fleiri en áður vilja göngugötur allt árið eða 25 prósent svarenda en var 12 prósent í sambærilegri könnun sem Maskína framkvæmdi í fyrra. Tæplega 5 prósent segjast alfarið á móti göngugötum, sem er sama hlutfall og í síðustu könnun.