Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR hefur dregið framboð sitt til baka í embætti 1. varaforseta ASÍ til að skapa sátt innan sambandsins. Þetta kemur fram í frétt mbl.is.
Í framboði verða Guðbrandur Einarsson, formaður VS og LÍV, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Vilhjálmur hafði áður ætlað að bjóða sig fram í embætti 2. varaforseta ASÍ.
Í samtali við mbl.is segir Ragnar að hann hafi tekið ákvörðun um að draga framboðið til baka til að skapa sátt innan hreyfingarinnar. Hann telur hana ennþá vera uppfulla af vondri pólitík og taumlausu hatri. Hann kvaðst vonast til að breið sátt myndaðist eftir að hann stigi til hliðar.
Drífa Snædal var kjörin nýr forseti ASÍ á 43. þingi sambandsins fyrr í dag, fyrst kvenna.
Auglýsing