Losun koltvísýrings frá einkennandi greinar ferðaþjónustunnar á Íslandi hefur ríflega fimmfaldast frá árinu 1995 og nær þrefaldast frá árinu 2012. Greinar ferðaþjónustunnar fara fram úr losun fyrirtækja í framleiðslu málma árið árið 2016. Þetta kemur fram í nýjustu tölum AEA , losunarbókhaldi Hagstofu Íslands, þar sem mælt er hver losun kolvísýrings er frá hagkerfi Íslands.
Mikil losun frá íslenskum flugfélögum
Í einkennandi greinum ferðaþjónustu kemur losun CO2 fyrst og fremst frá flugi en ekki er gerður greinarmunur á því, í mælingum AEA, hvort að starfsemi íslensku flugfélaganna fara fram á Íslandi eða erlendis eða hvort verið sé að þjónusta ferðamenn eða fólk búsetta á Íslandi.
Umsvif íslenskra flugfélaga hafa vaxið mjög ört síðustu sex ár. Losunin hefur beina fylgni við fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll. Frá 2012-2013 jókst fjöldi farþega um Keflavík jafnt og losun eða 14 prósent. Á árunum 2015-2016 fjölgaði farþegum um Keflavíkurflugvöll nær 35 prósent en losun frá greininni um 36 prósent. Þessi fylgni er hins vegar að hluta til tilviljun. Nokkur hluti farþega um Keflavíkurflugvöll ferðast með erlendum flugfélögum, sem teljast ekki með í AEA tölunum. Á sama tíma hafa umsvif íslenskra flugfélaga án viðkomu í Keflavík aukist.
Heildarlosun íslenska hagkerfisins hefur tvöfaldast frá 1995
Árið 1995 var heildarlosun koltvísýrings íslenska hagkerfisins 2.817 kílótonn en árið 2016 mæltist heildarlosunin 5.698 kílótonn. Losunin hefur því tvöfaldast. Árið 2008 náði losunin 4.600 kílótonnum, en lækkaði lítilega á sama tíma og hagkerfið dróst saman til ársins 2012. Losun ársins 2016 er sú mesta frá árinu 1995.
Losun koltvísýrings frá málmvinnslu var fjórum sinnum meira árið 2016 en árið 1994. Losun frá málmvinnslu jókst töluvert árin 1998 og 2008 í samræmi við fjölgun fyrirtækja í greininni. Losun koltvísýrings frá fyrirtækjum í sjávarútvegi og matvælaframleiðslu hefur lækkað um helming frá árinu 1995. Losun í sjávarútvegi og matvælaframleiðslu kemur fyrst og fremst vegna olíunotkunar hjá skipum, en einnig er notkun olíu til suðu og bræðslu í framleiðslu nokkur. Samdráttur í CO2 losun frá þessari grein hefur verið meiri en bein fækkun skipa myndi benda til. Frá 1999 til 2016 fækkaði skipum um 18 prósent á meðan losun dróst saman um 50 prósent.
Losun frá heimilum náði hámarki árið 2007
Losun koltvísýrings frá íslenskum heimilum árið 2016 var 30 prósent hærri en árið 1995, en hefur verið á bilinu 540 til 600 kílótonn CO2 frá 2008. En losun frá einstaklingum frá heimilum hefur aukist úr 1,63 kílótonnum á einstakling í 1,73 tonn árið 2016. Losun einstaklinga náði hámarki árið 2007 1,96 tonn á einstakling.
Losun frá heimilum er fyrst og fremst vegna aksturs en einnig er tekið tillit til notkunar eldunargass, hitunarolíu og flugelda. Flug, strætóferðir, sorplosun, notkun rafmagns og jarðvarma telur ekki inn í losun heimila, heldur reiknast á viðeigandi atvinnugreinar. Losun 1,7 tonn á einstakling er sambærileg og losunin frá meðalstórum fjölskyldubíl sem ekið er 8000 km.
Losun koltvísýrings sýnir aðeins hluta af allri losun gróðurhúsalofttegunda
Vert er að nefna að í fyrrgreindum tölum er aðeins er fjallað um losun koltvísýrings CO2 frá hagkerfi Íslands en ekki annarra gróðurhúsalofttegunda þar á meðal metan CH4, nitur oxíð NOx og brennisteins oxíð SOx.
Fiskvinnsla losaði 12.804,5 kílótonn af Nitur oxíð árið 2016 og landbúnaður 2456 kílótonn. Málmiðnaðurinn losaði til að mynda 12.198,7 kílótonn af brennistein út í umhverfið og fiskvinnsla 2352 tonn árið 2016.