Fiskeldisfyrirtækin Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. hafa fengið rekstrarleyfi til bráðabirgða til 10 mánaða fyrir laxeldi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði, samkvæmt ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þetta kemur fram í frétt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Matvælastofnun hafði veitt fyrirtækjunum rekstrarleyfi í lok árs 2017 en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála fellt þau úr gildi 27. september síðastliðinn.
Með breytingum sem gerðar voru á lögum um fiskeldi í síðasta mánuði var ráðherra veitt heimild, að fenginni umsögn Matvælastofnunar, að gefa út tímabundið rekstrarleyfi til allt að 10 mánaða. Við ákvörðun leyfis til Arctic Sea Farm og Fjarðalax var óskað eftir umsögnum frá Matvælastofnun, Byggðastofnun, Skipulagsstofnun og Umhverfisstofnun. Jafnframt var andmælendum veitt tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Rekstrarleyfin sem veitt eru til bráðabirgða eru bundin ákveðnum skilyrðum, meðal annars skal Matvælastofnun hafa eftirlit með fjölda útsettra laxaseiða, leyfishafi ber ábyrgð á vöktun og rannsóknum til að meta vistfræðileg áhrif á nánasta umhverfi og leyfishafa ber skylda til að nota erfðavísa þannig að unnt sé að rekja uppruna eldislaxa til ákveðinna sjókvíaeldisstöðva.
Auk þess ber fyrirtækjunum að hefjast þegar handa við að bæta úr þeim göllum sem úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindarmála taldi vera á málsmeðferð við útgáfu rekstrarleyfisins sem ógilt var og/eða láta reyna á lögmæti ógildingu þeirra fyrir dómsstólum.
Þann 9. október síðastliðinn var frumvarp Kristján Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra samþykkt á Alþingi en samkvæmt því er mögulegt að veita rekstrarleyfi til bráðabirgða fyrir fiskeldi.
Samkvæmt tilkynningu frá stjórnvöldum í byrjun október var frumvarpinu ætlað að lagfæra með almennum hætti annmarka á lögum um fiskeldi til framtíðar. Sá annmarki birtist í því að samkvæmt gildandi lögum er eina úrræði Matvælastofnunar í þeim tilvikum sem rekstrarleyfi fiskeldisstöðvar er fellt úr gildi að stöðva starfsemi hennar.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra sagði í stöðuuppfærslu á facebook-síðu sinni á sínum tíma að úrskurðir Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála væru mikilvægir því þeir drægju fram nauðsyn þess að skoða fleiri en einn kost líkt og lögin um mat á umhverfisáhrifum kveða á um.
Hann taldi aftur á móti að ekki væri verið að taka fram fyrir hendurnar á nefndinni með fyrrnefndu frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Einungis væri verið að búa til rými til að vinna úr þeim annmörkum sem nefndin benti á en ekki fella úrskurðina úr gildi.