Bjarni Már Júlíusson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir það vera honum léttir að skýrsla Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar liggi nú fyrir og staðfesti að uppsögn starfsmanns ON sem mestur styrr hefur staðið um hafi verið réttmæt og byggði á faglegu mati.
Samkvæmt niðurstöðum úttektar Reykjavíkurborgar voru uppsagnir þeirra Áslaugar Thelmu Einarsdóttur og Bjarna Más taldar réttmætar. Frá þessu var greint á fréttamannafundi OR í dag. Í frétt Kjarnans frá 13. september síðastliðnum kemur fram að starfslok Bjarna Más hafi tengst tilvikum þar sem framkoma hans gagnvart samstarfsfólki var óviðeigandi.
Í tilkynningu Bjarna Más segir að þá sé það ein af niðurstöðum skýrslunnar að ásakanir um mismunun á grundvelli kynferðis og um kynferðislegt áreiti í samskiptum hans við samstarfsfólk eigi ekki við nein rök að styðjast.
„Fyrirvaralaus uppsögn mín úr starfi framkvæmdastjóra ON var hins vegar að mínu mati bæði óverðskulduð og meiðandi og til hennar gripið í skyndi án þess að mér væri gefinn kostur á að útskýra mitt mál. Það fundust mér kaldar kveðjur eftir 6 ára farsæl störf í þágu OR/Orku náttúrunnar,“ segir hann í yfirlýsingunni.
Hann segir jafnframt það hafa verið ömurlega reynslu fyrir hann og fjölskyldu hans að fylgjast með hvernig vegið hafi verið að mannorði hans með vandlega útfærðum spuna, sem dreift hafi veirð á rétta staði til að ná sem mestri fylgni við einhliða og óstaðfesta frásögn af málsatvikum. „Ég vona að með niðurstöðum úttektar Innri endurskoðunar linni atlögum að mannorði mínu og óhróðri um minn fyrrverandi vinnustað.“