Sigrún Helga Lund sem sagði prófessorsstöðu sinni í líftölfræði lausri hjá Háskóla Íslands í gær segir viðbrögð háskólarektors hafa valdið sér vonbrigðum. Það sé greinilegt að það eigi að sópa málinu undir teppið.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem lögfræðingurinn Sigrún Jóhannsdóttir sendi til fjölmiðla fyrir hönd Sigrúnar Helgu í dag.
Sigrún Helga gaf það upp sem ástæðu að Háskólinn hefði ekki tekið á kæru hennar til siðanefndar vegna óviðeigandi framkomu yfirmanns innan skólans. Kjarninn fjallaði um málið í gær en þar kom fram að hún hefði kvartað til Háskóla Íslands vegna erfiðra samskipta og kynferðislegs háttalags af völdum yfirmanns hennar í starfsmannaviðtali.
Óbærilegt að vinna við þessar kringumstæður
Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að ekki hafi verið tekið á kynferðislegri áreitni í siðareglum háskólans og því hafi kæran ekki snúið beint að henni.
„Siðanefnd háskólans Háskólans taldi yfirmann Sigrúnar hinsvegar sekan um að hafa brotið gegn þremur ákvæðum siðareglna, hann hafi ekki sýnt Sigrúnu Helgu virðingu og látið persónuleg tengsl hafa áhrif á samvinnuna. Alvarlegasta brotið var talið snúa að því ákvæði sem fjallar um mismunun, meðal annars á grundvelli kyns og einelti á vinnustað. Þá taldi nefndin að sannanir skorti fyrir því að sögusagnir og dreifing á meiðandi ummælum um Sigrúnu væru á ábyrgð hans, en sagði þó að „ætla mætti að tengsl væru þar á milli“,“ segir í tilkynningunni.
Þrátt fyrir þessa niðurstöðu sem lá fyrir um miðjan júlí komu engin viðbrögð frá Jóni Atla Benediktssyni háskólarektor, samkvæmt Sigrúnu Helgu. Hún segir óbærilegt að vinna við slíkar kringumstæður. Yfirmaðurinn sé í stöðu til þess að gera lítið úr henni og hennar vinnu og úrskurðurinn hafi engin áhrif.
„Ég vildi að siðanefnd tæki afstöðu til þess hvort það væri eðlilegt að yfirmenn innan Háskólans væru að reyna að sofa hjá undirmönnum sínum og það hefði áhrif á starfsöryggi þeirra og framgang á vinnustað. Þetta er ekki einsdæmi því miður. Margir höfðu samband við mig eftir að fjallað var um málið í gær. Fólk sem hefur sömu sögu að segja og vill gjarnan ræða við fjölmiðla,“ segir Sigrún Helga.
Setti sig aldrei inn í málið
Sigrún Helga hitti háskólarektor á fundi í gær eftir að fjallað var um málið í fjölmiðlum. Þar segir hún að hann hafi skýrt frá því að hann hafi aldrei skoðað úrskurðinn eða sett sig inn í málið.
Í kjölfar þess að hún sagði upp stöðu sinni í gær kom yfirlýsing frá Sigurði Yngva Kristinssyni, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, þar sem hann hafnar alfarið ásökunum um að hafa áreitt Sigrúnu Helgu. Fram kemur í yfirlýsingu Sigrúnar Helgu í dag að hún hafi aldrei ætlað að fara út í nafnbirtingar eða neitt slíkt, leðjuslagur þjóni engum tilgangi. „Hann velur að fara fram með þessum hætti. Ég er mjög hneyksluð á þessum viðbrögðum en hann getur auðvitað valið að segja ósatt til að fegra sinn hlut. Hann þarf greinilega ekki að óttast viðbrögð háskólarektors,“ segir hún.
Gagnrýnir stjórnendur skólans
Sigrún Helga gagnrýnir að stjórnendur HÍ hafi ekki brugðist við niðurstöðu siðanefndar með einhverjum hætti, þar sem reglur hafi verið brotnar. „Það er alvarlegt mál að háskólarektor lítilsvirði siðanefndina með þessum hætti. Ef það hefur engar afleiðingar í för með sér að brjóta reglurnar hefur siðanefndin enga þýðingu,“ segir hún.
Hún segir að fram hafi komið í máli rektors að þar sem málið verðskuldi ekki formlega áminningu geti hann ekki brugðist við með öðrum hætti. „Það er frekar ódýrt að fórna mér og mínu mannorði af því þeir hafa ekki getu til að standa með konum í þessari aðstöðu á sama tíma og þeir eru að gera mikið úr jafnrétti innan skólans. Það er alveg ljóst að þegar stjórnendur skólans hafa ekki kjark til að ljúka málinu er óbærilegt fyrir mig að starfa innan skólans.“