Segir viðbrögð háskólarektors hafa valdið sér vonbrigðum

Sigrún Helga Lund sem sagði prófessorsstöðu sinni í líftölfræði lausri hjá Háskóla Íslands í gær segir viðbrögð háskólarektors hafa valdið sér vonbrigðum. Það sé greinilegt að það eigi að sópa málinu undir teppið.

Sigrún Helga Lund
Sigrún Helga Lund
Auglýsing

Sig­rún Helga Lund sem sagði pró­fess­ors­stöðu sinni í líf­töl­fræði lausri hjá Háskóla Íslands í gær segir við­brögð háskóla­rekt­ors hafa valdið sér von­brigð­um. Það sé greini­legt að það eigi að sópa mál­inu undir tepp­ið.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem lög­fræð­ing­ur­inn Sig­rún Jóhanns­dóttir sendi til fjöl­miðla fyrir hönd Sig­rúnar Helgu í dag.

Sig­rún Helga gaf það upp sem ástæðu að Háskól­inn hefði ekki tekið á kæru hennar til siða­nefndar vegna óvið­eig­andi fram­komu yfir­manns innan skól­ans. Kjarn­inn fjall­aði um málið í gær en þar kom fram að hún hefði kvartað til Háskóla Íslands­ ­vegna erf­iðra sam­skipta og kyn­ferð­is­legs hátta­lags af völdum yfir­manns hennar í starfs­manna­við­tali.

Auglýsing

Óbæri­legt að vinna við þessar kring­um­stæður

Í til­kynn­ing­unni kemur jafn­framt fram að ekki hafi verið tekið á kyn­ferð­is­legri áreitni í siða­reglum háskól­ans og því hafi kæran ekki snúið beint að henn­i. 

„Siða­nefnd háskól­ans Háskól­ans taldi yfir­mann Sig­rúnar hins­vegar sekan um að hafa brotið gegn þremur ákvæðum siða­reglna, hann hafi ekki sýnt Sig­rúnu Helgu virð­ingu og látið per­sónu­leg tengsl hafa áhrif á sam­vinn­una. Alvar­leg­asta brotið var talið snúa að því ákvæði sem fjallar um mis­mun­un, meðal ann­ars á grund­velli kyns og ein­elti á vinnu­stað. Þá taldi nefndin að sann­anir skorti fyrir því að sögu­sagnir og dreif­ing á meið­andi ummælum um Sig­rúnu væru á ábyrgð hans, en sagði þó að „ætla mætti að tengsl væru þar á milli­“,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Þrátt fyrir þessa nið­ur­stöðu sem lá fyrir um miðjan júlí komu engin við­brögð frá Jóni Atla Bene­dikts­syni háskóla­rekt­or, sam­kvæmt Sig­rúnu Helgu. Hún segir óbæri­legt að vinna við slíkar kring­um­stæð­ur. Yfir­mað­ur­inn sé í stöðu til þess að gera lítið úr henni og hennar vinnu og úrskurð­ur­inn hafi engin áhrif. 

„Ég vildi að siða­nefnd tæki afstöðu til þess hvort það væri eðli­legt að yfir­menn innan Háskól­ans væru að reyna að sofa hjá und­ir­mönnum sínum og það hefði áhrif á starfs­ör­yggi þeirra og fram­gang á vinnu­stað. Þetta er ekki eins­dæmi því mið­ur. Margir höfðu sam­band við mig eftir að fjallað var um málið í gær. Fólk sem hefur sömu sögu að segja og vill gjarnan ræða við fjöl­miðla,“ segir Sig­rún Helga. 

Setti sig aldrei inn í málið

Sig­rún Helga hitti háskóla­rektor á fundi í gær eftir að fjallað var um málið í fjöl­miðl­um. Þar segir hún að hann hafi skýrt frá því að hann hafi aldrei skoðað úrskurð­inn eða sett sig inn í mál­ið.

Í kjöl­far þess að hún sagði upp stöðu sinni í gær kom yfir­lýs­ing frá Sig­urði Yngva Krist­ins­syni, pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands, þar sem hann hafnar alfarið ásök­unum um að hafa áreitt Sig­rúnu Helgu. Fram kemur í yfir­lýs­ingu Sig­rúnar Helgu í dag að hún hafi aldrei ætlað að fara út í nafn­birt­ingar eða neitt slíkt, leðju­slagur þjóni engum til­gangi. „Hann velur að fara fram með þessum hætti. Ég er mjög hneyksluð á þessum við­brögðum en hann getur auð­vitað valið að segja ósatt til að fegra sinn hlut. Hann þarf greini­lega ekki að ótt­ast við­brögð háskóla­rekt­or­s,“ segir hún. 

Gagn­rýnir stjórn­endur skól­ans

Sig­rún Helga gagn­rýnir að stjórn­endur HÍ hafi ekki brugð­ist við nið­ur­stöðu siða­nefndar með ein­hverjum hætti, þar sem reglur hafi verið brotn­ar. „Það er alvar­legt mál að háskóla­rektor lít­ils­virði siða­nefnd­ina með þessum hætti. Ef það hefur engar afleið­ingar í för með sér að brjóta regl­urnar hefur siða­nefndin enga þýð­ing­u,“ segir hún. 

Hún segir að fram hafi komið í máli rekt­ors að þar sem málið verð­s­kuldi ekki form­lega áminn­ingu geti hann ekki brugð­ist við með öðrum hætti. „Það er frekar ódýrt að fórna mér og mínu mann­orði af því þeir hafa ekki getu til að standa með konum í þess­ari aðstöðu á sama tíma og þeir eru að gera mikið úr jafn­rétti innan skól­ans. Það er alveg ljóst að þegar stjórn­endur skól­ans hafa ekki kjark til að ljúka mál­inu er óbæri­legt fyrir mig að starfa innan skól­ans.“

Fréttatilkynning

Sig­rún Helga Lund sem sagði pró­fess­ors­stöðu sinni í líf­töl­fræði lausri hjá Háskóla Íslands í gær segir við­brögð háskóla­rekt­ors hafa valdið sér von­brigð­um. Það sé greini­legt að það eigi að sópa mál­inu undir tepp­ið.



Hún gaf það upp sem ástæðu að Háskól­inn hefði ekki tekið á kæru hennar til siða­nefndar vegna óvið­eig­andi fram­komu yfir­manns innan skól­ans.



Ekki er tekið á kyn­ferð­is­legri áreitni í siða­reglum háskól­ans og því sneri kæran ekki beint að henni. Siða­nefnd háskól­ans Háskól­ans taldi yfir­mann Sig­rúnar hins­vegar sekan um að hafa brotið gegn þremur ákvæðum siða­reglna, hann hafi ekki sýnt Sig­rúnu Helgu virð­ingu og látið per­sónu­leg tengsl hafa áhrif á sam­vinn­una. Alvar­leg­asta brotið var talið snúa að því ákvæði sem fjallar um mis­mun­un, meðal ann­ars á grund­velli kyns og ein­elti á vinnu­stað. Þá taldi nefndin að sann­anir skorti fyrir því að sögu­sagnir og dreif­ing á meið­andi ummælum um Sig­rúnu væru á ábyrgð hans, en sagði þó að „ætla mætti að tengsl væru þar á milli.“



Þrátt fyrir þessa nið­ur­stöðu sem lá fyrir um miðjan júlí komu engin við­brögð frá Jóni Atla Bene­dikts­syni háskóla­rekt­or. Sig­rún segir óbæri­legt að vinna við slíkar kring­um­stæð­ur. Yfir­mað­ur­inn sé í stöðu til þess að gera lítið úr henni og hennar vinnu og úrskurð­ur­inn hafi engin áhrif. „Ég vildi að siða­nefnd tæki afstöðu til þess hvort það væri eðli­legt að yfir­menn innan Háskól­ans væru að reyna að sofa hjá und­ir­mönnum sínum og það hefði áhrif á starfs­ör­yggi þeirra og fram­gang á vinnu­stað. Þetta er ekki eins­dæmi því mið­ur. Margir höfðu sam­band við mig eftir að fjallað var um málið í gær. Fólk sem hefur sömu sögu að segja og vill gjarnan ræða við fjöl­miðla.“



Sig­rún Helga hitti háskóla­rektor á fundi í gær eftir að fjallað var um málið í fjöl­miðl­um. Þar segir hún að hann hafi skýrt frá því að hann hafi aldrei skoðað úrskurð­inn eða sett sig inn í mál­ið.



Í kjöl­far þess að hún sagði upp stöðu sinni í gær kom yfir­lýs­ing frá Sig­urði Yngva Krist­ins­syni, pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands þar sem hann hafnar alfarið ásök­unum um að hafa áreitt Sig­rúnu Helgu. „Ég ætl­aði aldrei að fara út í nafn­birt­ingar eða neitt slíkt, leðju­slagur þjónar engum til­gangi“ segir Sig­rún.  „Hann velur að fara fram með þessum hætti. Ég er mjög hneyksluð á þessum við­brögðum en hann getur auð­vitað valið að segja ósatt til að fegra sinn hlut. Hann þarf greini­lega ekki að ótt­ast við­brögð háskóla­rekt­or­s.“



Sig­rún Helga gagn­rýnir að stjórn­endur HÍ hafi ekki brugð­ist við nið­ur­stöðu siða­nefndar með ein­hverjum hætti, þar sem reglur hafi verið brotn­ar. „Það er alvar­legt mál að háskóla­rektor lít­ils­virði siða­nefnd­ina með þessum hætti. Ef það hefur engar afleið­ingar í för með sér að brjóta regl­urnar hefur siða­nefndin enga þýð­ing­u.“



Hún segir að fram hafi komið í máli rekt­ors í dag að þar sem málið verð­s­kuldi ekki form­lega áminn­ingu geti hann ekki brugð­ist við með öðrum hætti. „Það er frekar ódýrt að fórna mér og mínu mann­orði af því þeir hafa ekki getu til að standa með konum í þess­ari aðstöðu á sama tíma og þeir eru að gera mikið úr jafn­rétti innan skól­ans. Það er alveg ljóst að þegar stjórn­endur skól­ans hafa ekki kjark til að ljúka mál­inu er óbæri­legt fyrir mig að starfa innan skól­ans.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent