Fjórir þingmenn Miðflokksins hafa kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem hafnað var beiðni sóknaraðila um að fram færu vitnaleiðslur og öflun sýnilegra sönnunargagna um atburðina á Klaustri, til Landsréttar. Þetta kemur fram í frétt Stundarinnar í dag.
Gera þingmennirnir, þau Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þá kröfu að úrskurður Héraðsdóms verði felldur úr gildi, enda telja þau að forsendur dómsins fái ekki staðist, segir í fréttinni.
Kröfu þingmannanna um gagnaöflun og vitnaleiðslur fyrir Héraðsdómi vegna fyrirhugaðrar málssóknar gegn Báru Halldórsdóttur, sem hljóðritaði samskipti þeirra á Klaustri þann 20. nóvember síðastliðinn, var hafnað fyrr í vikunni.
Stundin hefur kæruna undir höndum en hún var send 19. desember síðastliðinn. Þar kemur fram að þingmennirnir hafi þegar óskað eftir myndefni úr eftirmyndavélum frá Klaustri og Alþingi, enda telji þeir mikilvægt að upplýsa um málsatvik þann 20. nóvember á Klaustri bar.
Samkvæmt frétt Stundarinnar vekur lögmaður Miðflokksmanna, Reimar Pétursson, athygli á því að Bára hafi greint frá því í fjölmiðlum hvernig hún „sperrti eyrun“ og „þóttist“ vera að lesa ferðamannabæklinga sem hún hafði meðferðis þegar hún hljóðritaði samskipti þingmannanna. Þá vísi Reimar sérstaklega til myndar sem birtist í Stundinni og var tekin fyrir utan Klaustur „áður en varnaraðili hóf aðgerðir sínar nema, ef vera skyldi, að einhver annar hafi tekið hana“.
Af þessu dragi hann ályktun um einbeittan ásetning Báru: „Allt þetta gefur til kynna að þegar varnaraðili kom á Klaustur hafi hún komið þangað með það fyrirframgefna markmið að njósna um og taka upp samtöl sóknaraðila. Hún hafi gengið fumlaust til verka. Hún hafi haft meðferðis bæklinga sem hún notaði sem yfirvarp og búnað sem hentaði til verksins. Þá hafi hún dvalið á staðnum svo lengi sem í fjórar klukkustundir. Hafi hún þó sagst hafa verið á leiðinni á æfingu á leiksýningu sem ætlunin var að frumsýna tveimur dögum síðar, án þess að þetta hafi neitt tálmað þaulsetu hennar yfir upptökunum.“
Í frétt Stundarinnar segir enn fremur að þingmennirnir telji þetta gefa „ríka ástæðu til að kanna hvort einhver annar hafi komið að framkvæmd þessarar aðgerðar með varnaraðila eða hafi fylgt henni til hennar“. Finnist þeim frásögn Báru vera „öll út og suður“. Til að mynda segi hún eina stundina að samtalið hafi verið opinbert en aðra stundina lýsi hún erfiðleikum við að greina orðaskipti. „Trúverðugleiki frásagnar varnaraðila er því enginn.“
Fram komi að þingmennirnir séu hættir við að biðja um að dómkirkjuprestur verði kallaður fyrir dóm. „Sóknaraðilum hafði verið tjáð að kirkjan héldi út öryggismyndavélum, en í ljós mun vera komið að svo er ekki.“ Þarna vísi þeir væntanlega til orða Sveins Valgeirssonar dómkirkjuprests: „Við erum ekki með neinar eftirlitsmyndavélar til að leita í. Eini eftirlitsbúnaðurinn sem eitthvað gæti tengst Dómkirkjunni væri hið alsjáandi auga drottins og hans alþunna eyra.“