Hópurinn aldrei verið sterkari

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að vissulega geti hagsmunir einstakra félaga innan stéttarfélaganna verið mismunandi í einhverjum tilfellum en að skörunin sé mun meiri heldur en hitt.

Ragnar Þór Ingólfsson, Sólveig Anna Jónsdóttir og Vilhjálmur Birgisson.
Ragnar Þór Ingólfsson, Sólveig Anna Jónsdóttir og Vilhjálmur Birgisson.
Auglýsing

For­menn VR, Efl­ingar og Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness telja ekki vera „brest í blokk­inni“ eins og gefið er í skyn í frétt á for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag. Í henni segir að ólíkir hags­munir félags­manna gætu gert verka­lýðs­fé­lögum í sam­floti erfitt að klára kjara­við­ræður sam­an.

Að mati heim­ild­ar­manna Frétta­blaðs­ins hafa verka­lýðs­fé­lögin of ólíka hags­muni til að geta klárað við­ræður við Rík­is­sátta­semj­ara í sam­floti. „For­menn Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness og VR hafi sam­eig­in­lega hags­muni af því að ræða vexti, verð­trygg­ingu, vísi­tölu og hús­næð­is­mál en for­maður Efl­ingar þarf að semja um kjör hinna lægst laun­uðu. For­maður Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur er sagður á svip­uðum nótum og for­maður Efl­ingar enda að semja fyrir fisk­verka­fólk á svip­uðum launa­kjörum og félags­menn Efl­ing­ar,“ segir í frétt Frétta­blaðs­ins.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir í sam­tali við Kjarn­ann þetta vera yfir­gengi­lega fram­sett. Hóp­ur­inn hafi aldrei verið sterk­ari og að þau hafi frekar verið að þétta í röðum sín­um.

Auglýsing

Mun veikja félögin og mál­stað­inn ef þau standa ekki þétt saman

„Vissu­lega geta hags­munir ein­stakra félaga verið mis­mun­andi í ein­hverjum til­fell­um. En skör­unin er mun meiri heldur en hitt. Það er okkar allra hag­ur, hagur sam­fé­lags­ins, að hér geti fólk lifað af dag­vinnu­laun­um,“ segir Ragnar Þór og bætir því við að í kröfu­gerðum félag­anna komi þetta ber­lega í ljós þar sem eitt­hvað af brýnum hags­muna­málum sé að finna fyrir alla hópa.

„Eitt er þó víst að það mun veikja öll félögin og mál­stað okkar allra ef við stöndum ekki þétt saman í að lækka hér kostnað við að lifa og hækka launin sam­hliða því.

Það er sam­eig­in­legt verk­efni okkar allra og tökum við ábyrgð okkar í þeirri veg­ferð mjög alvar­lega,“ segir hann.

„Ódýr­asti fjöl­miðla­spuni árs­ins“

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, tekur í sama streng og Rangar Þór en hún segir að frétt Frétta­blaðs­ins eigi ekki við rök að styðj­ast.

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Efl­ing­ar, gagn­rýnir for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins í Face­book-­færslu í morgun og segir hana fjöl­miðla­spuna. „Ódýr­asti fjöl­miðla­spuni árs­ins er þó ekki of ódýr fyrir for­síðu Frétta­blaðs­ins!“ segir í færsl­unni.

Í sam­tali við Kjarn­ann segir hann að engin breyt­ing hafi orðið á sam­stöðu verka­lýðs­fé­lag­anna og að sam­staðan sé ennþá mjög þétt. Aðspurður um ólíka hags­muni félags­mann­anna segir hann að það sé rétt að innan félag­anna sé ólík sam­setn­ing félags­manna en hann bendir á að félögin þrjú hafi eytt næstum því heilu ári í að stilla saman strengi félag­anna og sam­rým­ast um kröf­ur.

Rétt­læt­an­legt að ákveðnar starfs­stéttir beiti verk­falli

Í frétt Frétta­blaðs­ins segir að félags­menn verka­lýðs­fé­lag­anna gætu haft mjög ólíka afstöðu til verk­falls og telja heim­ildir blaðs­ins að ólík­legt sé að verk­fall verði sam­þykkt af félags­mönnum VR. Viðar segir að hann hafi ekki séð nein gögn um afstöðu félags­manna VR til verk­falla en vísar í könnun MMR frá því í des­em­ber í fyrra þar sem fram koma að nærri þrír af hverjum fjórum Íslend­ing um, 74 pró­sent, segja það rétt­læt­an­legt að ákveðnar starfs­stéttir beiti verk­falli á næstu miss­erum til að ýta eftir bættum starfs­kjör­um. Rúmur meiri­hluti, 59 pró­sent, sagð­ist jafn­framt til­bú­inn að taka þátt í verk­falli til að bæta starfs­kjör sín og/eða ann­arra. Viðar segir það því ekki liggja fyrir að félags­menn Efl­ingar séu einir um að vilja fara í verk­fall, en í nýrri könnun Gallup kemur fram að tæp 80 pró­sent félags­manna Efl­ingar séu hlynntir því að fara í verk­fall til að knýja á launa­kröfur verka­lýðs­fé­lag­anna.

Ódýr­asti fjöl­miðla­spuni árs­ins er þó ekki of ódýr fyrir for­síðu Frétta­blaðs­ins!

Posted by Vidar Thor­steins­son on Monday, Febru­ary 18, 2019


Standa og falla saman

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, segir í sam­tali við Frétta­blaðið það alger­lega af og frá að um bresti í sam­stöðu félag­anna fjög­urra sé að ræða. „Við erum mjög sam­hent í þess­ari vinnu og stöndum og föllum með henni sam­an.“ Hann segir fund for­setateymis ASÍ með stjórn­völdum á morgun geta haft úrslita­á­hrif á hvort samn­ingar náist en næst­i fundur félag­anna fjög­urra hjá Rík­is­sátta­semj­ara verður á fimmtu­dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent