Facebook hyggst koma á fót eigin rafmynt

Samfélagsmiðlarisinn Facebook tilkynnti í dag um áætlun sína að koma á fót nýrri rafmynt sem mun kallast Libra.

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook.
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook.
Auglýsing

Stjórn­endur Face­book til­kynntu í morgun að fyr­ir­tækið hefði í huga að koma á fót eigin raf­mynt. Raf­myntin mun bera heitið Libra og mun vera not­endum aðgengi­leg árið 2020. 

Hægt verður að nota raf­mynt­ina til að greiða fyrir hluti í dag­legu lífi auk þess verður hægt að nota hana til þess að greiða fyrir hluti eða þjón­ustu á net­inu.

Auglýsing
Rafmyntin er þróuð í sam­starfi við 27 önnur fyr­ir­tæki, til að mynda Uber og Mastercard. Áhyggjur eru yfir því að Face­book muni auka völd sín yfir not­endum sínum um of og hafa of miklar upp­lýs­ingar um not­endur sína verði raf­myntin að veru­leika, að því er kemur fram í frétt The New York Times.

Face­book stað­hæfir að fjár­hags­upp­lýs­ingar verði ekki not­aðar til þess að sér­sníða aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðlafor­rit­inu.

Verði Libra að veru­leika verður fjár­mála­kerfi þess ekki stjórnað af seðla­banka. Hægt verður að borga fyrir ýmsa þjón­ustu með raf­mynt­inni, að því er kemur fram í frétt The New York Times. Slíkt geti bætt sam­keppn­is­stöðu Face­book við önnur sam­fé­lags­miðlafor­rit sem bjóða upp á greiðslu­þjón­ustu, líkt og hið kín­verska WeChat.

Nái Libra vin­sældum hjá 2,4 millj­örðum not­endum Face­book, gæti það haft veru­leg áhrif á fjár­mála­kerfi heims­ins. Ýmsir banda­rískir og breskir emb­ætt­is­menn hafa einmitt lýst yfir áhyggjum sínum af slíkri þróun sam­fé­lags­miðl­aris­ans.

Þá kemur fram í frétt­inni að Libra muni vera stjórnað af the Libra Associ­ation, sem ekki verði rekið í gróðr­ar­skyni. Libra muni not­ast við svo­kall­aða Blockchain, eða skjala­keðju, líkt og raf­myntin Bitcoin ger­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent