Skipulögð aðför að grundvallarréttindum launafólks, svo sem verkfallsréttinum og réttinum til að mótmæla, ógnar víða friði og stöðugleika. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) en frá þessu er greint á vef ASÍ.
Í frétt ASÍ um málið segir að ofbeldi og frelsissviptingar á verkafólki sem reynir að standa á sínu hafi ágerst á Indlandi, í Tyrklandi og Víetnam.
Samkvæmt skýrslunni eru Alsír, Bangladesh, Brasilía, Filipseyjar, Gvatemala, Kasakstan, Kólumbía, Saudi-Arabía, Tyrkland og Zimbabve þau verstu þegar kemur að ofbeldi og brotum á réttindum verkafólks. Í 72 prósent landa heims hefur verkafólk engan eða takmarkaðan aðgang að réttarkerfinu sé á því brotið.
Í skýrslunni kemur fram að Ísland sé í flokki 1 ásamt Ástralíu, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi, Írlandi, Ítalíu, Hollandi, Noregi, Slóvakíu, Svíþjóð og Úrúgvæ. Það þýðir að í þessum löndum er brotið á réttindum verkafólks „stöku sinnum“. Í flokki 5 er ástandið verst – þar sem réttindi eru ekki tryggð – en þar eru 34 lönd og þeirra á meðal eru þau lönd sem áður voru upptalin.
Stjórnvöld víða um heim þagga markvisst niður í óánægjuröddum
Sharan Burrow, framkvæmdastjóri ITUC, segir að frá Hong Kong til Máritaníu og Fillipseyjum til Tyrklands reyni stjórnvöld markvisst að þagga niður í óánægjuröddum meðal verkafólks með því að takmarka málfrelsi og hindra fundarhöld.
„Hnignun samfélagssáttmálans milli launafólks, ríkisstjórna og atvinnurekenda hefur orðið til þess að fjöldi landa sem meina verkafólki að vera í verkalýðsfélögum fór úr 92 árið 2018 í 107 árið 2019. Og fjölgun slíkra landa var mest í Evrópu þar sem helmingur ríkjanna útilokar hópa verkafólks frá aðild að stéttarfélögum. Ákveðin stórfyrirtæki neita starfsfólki sínu um réttindi sem áður þóttu góð og gild,“ segir Burrow.
Hann bætir því við að enginn verkamaður eigi að vera skilinn eftir vegna þess að atvinnurekandinn ákveði einhliða að taka upp viðskiptamódel þar sem sjálfsögð réttindi á vinnumarkaði þvælist fyrir græðginni. Fyrirtæki sem hafa hingað til hunsað rétt starfsmanna sinna standi núna frammi fyrir mótmælum víða um heim. Þetta séu fyrirtæki eins og Uber, Amazon og Ryanair.