Aðför að grundvallarréttindum launafólks ógnar friði og stöðugleika

Í 72 prósent landa heims hefur verkafólk engan eða takmarkaðan aðgang að réttarkerfinu sé á því brotið.

Mótmæli
Mótmæli
Auglýsing

Skipu­lögð aðför að grund­vall­ar­rétt­indum launa­fólks, svo sem verk­falls­rétt­inum og rétt­inum til að mót­mæla, ógnar víða friði og stöð­ug­leika. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða­sam­bands verka­lýðs­fé­laga (IT­UC) en frá þessu er greint á vef ASÍ.

Í frétt ASÍ um málið segir að ofbeldi og frels­is­svipt­ingar á verka­fólki sem reynir að standa á sínu hafi ágerst á Ind­landi, í Tyrk­landi og Víetna­m. 

Sam­kvæmt skýrsl­unni eru Alsír, Bangla­desh, Brasil­ía, Fil­ips­eyj­ar, Gvatemala, Kasakstan, Kól­umbía, Saudi-­Ar­ab­ía, Tyrk­land og Zimbabve þau verstu þegar kemur að ofbeldi og brotum á rétt­indum verka­fólks. Í 72 pró­sent landa heims hefur verka­fólk engan eða tak­mark­aðan aðgang að rétt­ar­kerf­inu sé á því brot­ið.

Auglýsing

Í skýrsl­unni kemur fram að Ísland sé í flokki 1 ásamt Ástr­al­íu, Dan­mörku, Finn­landi, Þýska­landi, Írlandi, Ítal­íu, Hollandi, Nor­egi, Slóvak­íu, Sví­þjóð og Úrúg­væ. Það þýðir að í þessum löndum er brotið á rétt­indum verka­fólks „stöku sinn­um“. Í flokki 5 er ástandið verst – þar sem rétt­indi eru ekki tryggð – en þar eru 34 lönd og þeirra á meðal eru þau lönd sem áður voru upp­tal­in. 

Úr skýrslu ITUC 2019

Stjórn­völd víða um heim þagga mark­visst niður í óánægju­röddum

Sharan Burrow, fram­kvæmda­stjóri ITUC, segir að frá Hong Kong til Márit­aníu og Fillips­eyjum til Tyrk­lands reyni stjórn­völd mark­visst að þagga niður í óánægju­röddum meðal verka­fólks með því að tak­marka mál­frelsi og hindra fund­ar­höld.

„Hnignun sam­fé­lags­sátt­mál­ans milli launa­fólks, rík­is­stjórna og atvinnu­rek­enda hefur orðið til þess að fjöldi landa sem meina verka­fólki að vera í verka­lýðs­fé­lögum fór úr 92 árið 2018 í 107 árið 2019. Og fjölgun slíkra landa var mest í Evr­ópu þar sem helm­ingur ríkj­anna úti­lokar hópa verka­fólks frá aðild að stétt­ar­fé­lög­um. Ákveðin stór­fyr­ir­tæki neita starfs­fólki sínu um rétt­indi sem áður þóttu góð og gild,“ segir Burrow.

Hann bætir því við að eng­inn verka­maður eigi að vera skil­inn eftir vegna þess að atvinnu­rek­and­inn ákveði ein­hliða að taka upp við­skipta­módel þar sem sjálf­sögð rétt­indi á vinnu­mark­aði þvælist fyrir græðginni. Fyr­ir­tæki sem hafa hingað til hunsað rétt starfs­manna sinna standi núna frammi fyrir mót­mælum víða um heim. Þetta séu fyr­ir­tæki eins og Uber, Amazon og Ryana­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent