Tæpar fjórar milljónir söfnuðust í Málfrelsissjóðinn

Forsvarskonur Málfrelsissjóðsins segjast vera í skýjunum með árangurinn en söfnuninni lauk í gær.

Málfrelsissjóður Mynd: Facebook
Auglýsing

Alls söfn­uð­ust 3.767.000 krónur í Mál­frels­is­sjóð­inn en söfn­unin hófst þann 21. júní síð­ast­lið­inn og lauk í gær. Frá þessu er greint á Face­book-­síðu sjóðs­ins í dag.

„Við erum í skýj­unum með árang­ur­inn og þökkum öllum sem lögðu sitt af mörkum kær­lega fyrir sam­stöð­una. Hjálp ykkar nýt­ist til að umbylta því hvernig tekið er á kyn­bundnu ofbeldi og nauðg­unum á Íslandi og mun tví­efla þær sem berj­ast fyrir rétt­læti á þessu sviði.

Einnig er ómet­an­legt fyrir þolendur að vita af slíkum stuðn­ingi, burt­séð frá pen­ing­unum sem hafa safn­ast. Sér­stak­lega þökkum við þeim hug­rökku konum sem sögðu frá sínum upp­lif­inum af því að lifa við skert mál­frelsi og afleið­ingum þess að mega ekki tjá sig um ofbeldið sem þær urðu fyr­ir,“ segir á síðu sjóðs­ins.

Auglýsing

Sam­kvæmt sjóðnum verða næstu skref að form­festa sjóð­inn og úthlut­un­ar­reglur og munu þær birta allar praktískar upp­lýs­ingar þegar þær liggja fyr­ir.

Í lok­inn þakka þær fyrir og segja: „Við höfum sýnt að við munum ekki þagna.“

Í Mál­frels­is­sjóð söfn­uð­ust 3.767.000 isk á þessum eina mán­uði. Við erum í skýj­unum með árang­ur­inn og þökkum öllum sem...

Posted by Mál­frels­is­sjóður on Monday, July 22, 2019

Berj­ast fyrir því að fá rétt­ar­kerf­inu breytt

Kon­urnar sem stóðu fyrir söfn­un­inni eru þær Helga Þórey Jóns­dótt­ir, Anna Lotta Michaels­dótt­ir, Elísa­bet Ýr Atla­dóttir og Sóley Tóm­a­s­dótt­­ir.

Anna Lotta sagði í sam­tali við Kjarn­ann í júní síð­ast­liðnum að dóm­­­ur­inn gegn Odd­nýju Ara­dóttur og Hildi Lilli­endahl Vigg­ós­dótt­­­ur, sem dæmdar voru til að greiða miska­bætur vegna ummæla sinna í kjöl­far hins svo­­­kall­aða Hlíða­­­máls, væri for­­­dæm­is­­­gef­andi. Anna Lotta sagði að stofn­endur sjóðs­ins væru að berj­­­ast fyrir því að fá rétt­­­ar­­­kerf­inu breytt og að gefið væri að Oddný og Hildur myndu fá úr sjóðn­­­um.

„Það er ekk­ert verið að dæma harðar eða oftar í kyn­­­ferð­is­brota­­­mál­um, en þá virð­ist með þessum dómi vera komið til­­­­­tölu­­­lega gott vopn gegn konum sem tjá sig um kyn­­­ferð­is­of­beldi, að það sé hægt að kæra þær fyrir meið­yrð­i,“ sagði Anna Lotta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent