May ávarpaði blaðamenn í hinsta sinn sem forsætisráðherra

May segir mikinn heiður að hafa þjónað Bretlandi sem forsætisráðherra. Hún telur að Brexit samningur verði helsta viðfangsefni næstu ríkisstjórnar.

h_53463243.jpg
Auglýsing

May ávarp­aði blaða­menn í hinsta sinn sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í dag. Hún telur Brexit samn­ing munu verða helsta við­fangs­efni næstu rík­is­stjórn­ar. Hún óskaði Boris John­son einnig til ham­ingju með nýja emb­ættið og óskaði honum vel­farn­aðar í sínum störf­um. Jafn­framt segir hún að hún muni ráð­leggja drottn­ingu að til­nefna Boris John­son sem næsta for­sæt­is­ráð­herra.

Í dag mun Boris John­­son taka við kefl­inu sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og mynda nýja rík­­is­­stjórn. May hélt í kjöl­farið á fund drottn­ingar þar sem hún baðst lausnar frá emb­ætti sínu. Hún verður þó áfram þing­­maður á breska þing­inu.

Auglýsing
Í ræðu sinni sagði May efna­hag Bret­lands hafa batnað og að Brexit samn­ingur væri helsta við­fangs­efni næstu rík­is­stjórn­ar. Hún sagði að henni væri mik­ill heiður að hafa verið for­sæt­is­ráð­herra og að hún væri full þakk­lætis fyrir tæki­færið sem henni hefði verið veitt.

Hún sagð­ist vona að allar ungar stúlk­ur, haf­andi séð hana sem for­sæt­is­ráð­herra, viti að þeim væru engin tak­mörk sett um hverju þær gætu áork­að.

Orða­skak Cor­byn og May í morgun

Ther­esa May svar­aði í síð­­asta skipti fyr­ir­­spurnum frá þing­­mönnum sem for­­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í morg­un. Til harðra orða­­skipta kom á milli May og Jer­emy Cor­­byn, ­for­­manns Verka­­manna­­flokks­ins. May sagði að Cor­­byn ætti að skamm­­ast sín fyrir að hafa kosið gegn Brexit samn­ingi hennar og að hann ætti að segja af sér­. „­Sem ein­hver sem veit hvenær sé hennar tími til að gef­­ast upp, sting ég upp á að Cor­­byn átti sig á því að nú sé hans tími til að hætta runn­inn upp,“ sagði May. 

Cor­­byn þakk­aði May fyrir þjón­­ustu hennar fyrir almenn­ing. Síðan sótti hann hart að May og spurði hvort hún harm­aði ástand almenn­ings í Bret­landi, þar sem barna­­fá­tækt hefði aukist, glæpum fjölgað sem og heim­il­is­­laus­­um. May svar­aði að nú væru börn í betri skól­um, meiri at­vinn­u­þátt­­taka væri í Bret­landi auk þess sem aðstæður almenn­ings hefðu batn­að. 

Cor­byn vill að kosið verði á þing að nýju svo breskur almenn­ingur geti kosið sinn eig­inn for­­sæt­is­ráð­herra, ekki að keflið um for­­sætið fari ein­ungis á milli leið­­toga Íhalds­­­flokks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent