Logi biður Guðlaug Þór um nánari útskýringar á heimsókn Pence

Formaður Samfylkingarinnar segir utanríkisráðherra hafa sleppt því að nefna að ástæða heimsóknar Mike Pence til Íslands sé landfræðilegt mikilvægi Íslands á norðurslóðum og aðgerðir NATO til að bregðast við auknum umsvifum Rússlands.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, haldi því fram að til­efni heim­sóknar Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, til Íslands sé sam­starf á sviði efna­hags- og við­skipta­mála. Guð­laugur Þór hafi þó sleppt því að nefna að ástæða heim­sókn­ar­innar sé að und­ir­strika land­fræði­legt mik­il­vægi Íslands á norð­ur­slóðum og aðgerðir NATÓ til að bregð­ast við auknum umsvifum Rúss­lands. 

„Mörgum brá eðli­lega í brún snemm­sum­ars þegar rík­is­stjórnin færði 300 millj­ónir af fyr­ir­hug­uðum fram­lögum til þró­un­ar­að­stoðar í við­hald mann­virkja NATÓ á Kefla­vík­ur­flug­velli. Enn frekar þegar í ljós kom að umfang fram­kvæmda virð­ist marg­falt það sem kynnt var,“ segir í færsl­unni.

Auglýsing
Logi segir að þann 23. júlí síð­ast­lið­inn hafi hann óskað eftir því að utan­rík­is­ráð­herra, eða að minnsta kosti full­trúar utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, kæmi á fund utan­rík­is­mála­nefndar og gerði betur grein fyrir þeirri upp­bygg­ingu sem nú er fyr­ir­huguð á varn­ar­svæð­inu í Kefla­vík. „Ég bað einnig um að gerð verði betri grein fyrir hvaða áform eru um við­veru her­manna þar. Mér hefur ekki borist svar en hef ítrekað beiðni mína og í leið­inni beðið um munn­lega skýrslu vegna heim­sóknar Pence til lands­ins.“

NATO og norð­ur­slóðir helsta umræðu­efnið

­Mike Pence, vara­­for­­seti Banda­­ríkj­anna, mun koma í opin­bera heim­­sókn til Íslands 4. sept­­em­ber næst­kom­andi. Pence mun einnig heim­­sækja Bret­land og Írland í þess­­ari ferð þar sem hann kemur fram fyrir hönd Don­ald Trump, for­­seta Banda­­ríkj­anna. 

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Hvíta hús­inu sem birt var í gær­­kvöldi. Þar segir að í ferð sinni til Íslands muni Pence und­ir­­strika mik­il­vægi Íslands á Norð­­ur­slóðum og ræða aðgerðir NATO til að vinna gegn auknum yfir­­­gangi Rússa á því svæði. Þá muni hann ræða tæki­­færi til að ræða aukn­ingu á við­­skiptum og fjár­­­fest­ingum milli land­anna, en eng­inn frí­versl­un­­ar­­samn­ingur er í gildi sem stendur milli Íslands og Banda­­ríkj­anna. 

Í við­tali um heim­sókn Mike Pence vara­for­seta Banda­ríkj­anna til Íslands, hélt Guð­laugur Þór utan­rík­is­ráð­herra því fram að...

Posted by Logi Ein­ars­son on Thurs­day, Aug­ust 15, 2019


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent