Safna fyrir málskostnaði Báru

Hópurinn „Takk Bára” efnir nú til söfnunar til að greiða málskostnað Báru Halldórsdóttur að fullu vegna málaferla Klausturþingmanna á hendur henni.

Bára Halldórsdóttir
Bára Halldórsdóttir
Auglýsing

Söfnun er hafin fyrir máls­kostn­aði Báru Hall­dórs­dóttur á Karolina­fund vegna mála­ferla Klaust­urs­þing­manna á hendur henni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá „Takk Bára”-hópnum sem var stofn­aður til að slá skjald­borg um Báru eftir að hún kom fram sem upp­ljóstr­ar­inn Mar­vin eftir að hafa tekið upp sam­tal þing­manna á Klaustri bar í nóv­em­ber í fyrra og komið upp­tök­unni til fjöl­miðla.

Í til­kynn­ing­unni segir að Lög­manns­stofan Réttur reki málið fyrir Báru og veiti henni auk þess veru­legan afslátt. Það sem eftir stendur séu um 300.000 krónur sem sé um 10 pró­sent af raun­kostn­aði.

Greint var frá því í fjöl­miðlum þann 22. maí síð­­ast­lið­inn að stjórn Per­­són­u­verndar hefði ekki fall­ist á kröfu þing­­manna Mið­­flokks­ins um að Bára yrði sektuð vegna hljóð­­rit­unar hennar á sam­­skiptum þeirra sem fram fóru á Klaustur bar. Hins vegar tald­ist upp­­takan ólög­­leg sam­­kvæmt per­­són­u­vernd­­ar­lögum og bæri Báru að eyða henni og senda Per­­­són­u­vernd stað­­­fest­ingu á að það hefði verið gert eigi síðar en 5. júní síð­ast­lið­inn. Bára eyddi Klaust­­ur­­upp­­­tök­unum með við­höfn þann 4. júní.

Auglýsing

Þá kemur enn fremur fram í til­kynn­ingu „Takk Bára“ að þau sem þegar hafi lagt söfn­un­inni lið eru lista­menn­irnir Hug­leikur Dags­son, Sara Oskars­son, Har­ald Bil­son, Ragn­hildur Jóhanns­dótt­ir, Jóhann Lud­wig Torfa­son, María Gísla­dótt­ir, Ragnar Jón Ragn­ar­son (Humi), Þrándur Þór­ar­ins­son, lista­fólkið á bak við sýn­ing­una Drag-­Súg­ur, auk Mar­grétar Erlu Maack með sýn­ing­una Búkalú. Áhuga­samir geti enn lagt til verk í söfn­un­ina.

Mála­ferlum lokið í bili

„Hóp­ur­inn sem stendur að baki Báru hefur frá upp­hafi snú­ist um móralskan stuðn­ing við Báru sem og mögu­legan mögu­legan fjár­hags­legan stuðn­ing vegna kostn­aðar hennar við mála­ferli og annað umstang sem fylgir því að standa í eld­lín­unni. Margt fólk hefur lýst yfir áhuga sínum á að leggja Báru lið fjár­hags­lega þegar á að halda. Nú er svo komið að kostn­aður Báru liggur fyrir vegna rann­sóknar og úrskurðar Per­sónu­verndar sem Klaust­urs­þing­menn fóru fram á. Mála­ferlum er lokið – í bili alla­vega,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Jafn­framt kemur fram hjá hópnum að ýmis kostn­að­ur, beinn og óbeinn, hafi fallið á Báru vegna máls­ins annar en lög­fræði­kostn­að­ur, svo sem ferða­lög, auk­inn læknis­kostn­aður vegna álags, vinnu­tap kon­unnar hennar og fleira, og muni allt sem safn­ast í þessu átaki ein­fald­lega renna til Báru fyrir utan 10 pró­sent söfn­un­ar­kostnað sem fari til Karol­ina Fund.

Mark­miðið sé að safna fyrir lög­fræði­kostn­aðnum en allt umfram það nýt­ist Báru í að rétta sig af fjár­hags­lega. „Mörg ykkar hafa verið að bíða eftir því að geta sagt „Takk Bára” í formi fjár­fram­lags. Sá tími er kom­inn. Gerum þetta sam­an!“

Einnig er sam­kvæmt hópnum hægt að leggja inn á banka­reikn­ing í eigu Rann­veigar vin­konu Báru: 0303-26-2817 kt. 171279-5779.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent