Twitter bannar pólitískar auglýsingar

Uppáhaldssamfélagsmiðill forseta Bandaríkjanna hefur ákveðið að banna pólitískar auglýsingar. Það er skoðun stjórnenda að boðskapur eigi að vinna sér inn útbreiðslu, ekki kaupa hana. Facebook ætlar engu að breyta.

Jack Dorsey, forstjóri Twitter.
Jack Dorsey, forstjóri Twitter.
Auglýsing

Sam­fé­lags­miðl­aris­inn Twitter hefur ákveðið að banna póli­tískar aug­lýs­ing­ar. Þetta til­kynnti Jack Dorsey, for­stjóri Twitt­er, í stöðu­upp­færslu á Twitter í gær. Þar segir Dorsey að bannið eigi við alþjóð­lega, ekki bara í Banda­ríkj­un­um. Það sé trú fyr­ir­tæk­is­ins að póli­tískur boð­skapur eigi að vinna sér inn útbreiðslu, en ekki kaupa hana. 

Hlut­verk sam­fé­lags­miðla í lýð­ræð­is­legum kosn­ing­um, þar sem hægt er að nýta þá til að dreifa meðal ann­ars röngum eða bjög­uðum upp­lýs­ingum eða póli­tískum áróðri sem á sér ekki fastar rætur í raun­veru­leik­an­um, hefur stór­auk­ist á und­an­förnum árum sam­hliða því að hlut­verk sam­fé­lags­miðla á borð við Twitter og Face­book hefur orðið stærri hluti af dag­legum neyt­enda­veru­leika millj­arða manna um heim all­an. 

Dorsey útskýrði síðan ákvörð­un­ina í röð stöðu­upp­færslna þar sem hann sagði meðal ann­ars að með því að heim­ila greiðslu fyrir aukna útbreiðslu á póli­tískum skila­boðum væri verið að neyða skila­boðin upp á fólk sem hefði hvorki valið að fylgja við­kom­andi reikn­ingi né retweet-að skila­boðum af hon­um. Það eigi ekki að gera mála­miðlun með val not­enda um að nálg­ast slík skila­boð vegna pen­inga. 

Auglýsing
Ned Segal, fjár­mála­stjóri Twitt­er, sagði í sam­tali við CNN að ákvörð­unin væri prinsipp ákvörð­un, en ekki tekna á pen­inga­legum grunni.

Twitter er upp­á­halds­sam­fé­lags­mið­ill Don­ald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, sem notar mið­ill­inn oft á tíðum oft á dag til að miðla skoð­unum sínum á mönnum og mál­efnum á hátt sem aldrei áður hefur tíðkast hjá jafn valda­miklum stjórn­mála­manni. Það gerir hann meðal ann­ars til að koma skila­boðum sínum ómeng­uðum til fylgj­enda sinna, í stað þess að þau ber­ist í gegnum hefð­bundna fjöl­miðla, sem Trump treystir ekki og ásakar ítrekað um að vera óvini fólks­ins sem breiði út fals­frétt­ir. Notkun Trump á Twitter hefur verið í umræð­unni í for­vali Demókrata vegna for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum á næsta ári en hluti fram­bjóð­enda, meðal ann­ars Kamala Harris, hafa bent á að Trump, sem setur ítrekað fram rangar eða tæpar stað­hæf­ing­ar, brjóti gegn not­enda­skil­málum Twitter með slíkri hegðun og því eigi fyr­ir­tækið að loka reikn­ingi hans. 

Face­book ætlar ekki að fylgja í fót­spor Twitter

Sá sam­fé­lags­mið­ill sem hefur legið mest undir gagn­rýni vegna meintrar mis­notk­unar á honum í póli­tískum til­gangi er Face­book. Fyr­ir­tækið risa­vaxna til­kynnti í gær um enn eitt gríð­ar­lega arð­bæra árs­fjórð­ungin í rekstri sín­um. Á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2019 nam hagn­aður Face­book 6,1 millj­arði Banda­ríkja­dala, eða um 760 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar er búist við að fjár­lög næsta árs á Íslandi verði um eitt þús­und millj­arðar króna. þ.e. öll eyðsla íslenska rík­is­ins. Megnið af tekju­aukn­ingu Face­book er vegna vax­andi aug­lýs­inga­tekna.

Mark Zucker­berg, stofn­andi og for­stjóri Face­book, sagði við kynn­ingu á upp­gjör­inu að það þyrfti að gæta var­úðar gagn­vart auk­inni reglu­setn­ingu gagn­vart póli­tískri orð­ræðu. Í lýð­ræð­is­ríki væri ekki rétt að einka­fyr­ir­tæki væru að rit­skoða stjórn­mála­menn eða frétt­ir. Hann myndi halda áfram að meta hvort það væri gagn­legt að leyfa póli­tískar aug­lýs­ingar á Face­book og enn sem komið er væri það hans skoðun að það væri betra að leyfa þær.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent