Rauði krossinn telur ekki forsvaranlegt að túlkun Útlendingastofnunar eða ríkislögreglustjóra geti ráðið úrslitum um hvort að brottflutningur fari fram eða ekki þegar heilbrigðisgögn taka ekki af öll tvímæli um ástand viðkomandi eða eru ekki nógu skýr.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Rauða krossinum í dag.
Heilbrigðisvottorð þurfi að taka af allan vafa um hvort óhætt sé að flytja fólk sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eða ekki. Úr þessu verklagi verði að bæta strax, hvort um sé að ræða verklag Útlendingastofnunar, ríkislögreglustjóra eða verklag í heilbrigðiskerfinu sem varðar þennan viðkvæma hóp.
Á bak við tölur er raunverulegt fólk
„Brotalöm í kerfinu varðar líf og heilsu einstaklinga. Á bak við tölur er raunverulegt fólk eins og skýrt sást í fjölmiðlum í gær,“ segir í yfirlýsingunni.
Fram kom í fréttum í gær að þungaðri albanskri konu sem gengin var nærri 36 vikur hafi verið vísað úr landi, ásamt fjölskyldu sinni, eiginmanni og tveggja ára barni, þrátt fyrir að teljast bæði í áhættuhópi vegna fyrri meðgöngu og vera í erfiðri stöðu sem umsækjandi um alþjóðlega vernd.
Brottvísunin var í andstöðu við ráðleggingar heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu um að þungaðar konur í áhættuhópi fari ekki í flug eftir 32. viku meðgöngu.
Brottvísun er þvingunarúrræði
Í yfirlýsingu Rauða krossins kemur fram að brottvísun sé þvingunarúrræði sem geti valdið mikilli streitu og kvíða. Streita á móður geti haft alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir hana og ófætt barn hennar.
Rauði krossinn harmar framkvæmdina og að ekki hafi verið staldrað við, sér í lagi þegar fyrir hafi legið nýtt læknisvottorð sem stangist á við eldra vottorð . Í hinu nýja vottorði hafi ekki verið mælt með flutningi og þar segir að konan sé slæm af stoðkerfisverkjum í baki og ætti erfitt með langt flug. Frá upphafi brottvísunar og þangað til fjölskyldan komst á áfangastað þurftu þau að taka þrjú flug og tók ferðalagið alls nítján klukkustundir, samkvæmt fjölmiðlaumfjöllun.
Flutningur hefði ekki átt að fara fram á þessum tímapunkti
Þá benda samtökin á að samkvæmt 2. gr. laga um útlendinga sé markmið laganna meðal annars að tryggja mannúðlega meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga. Meðferð á fjölskyldunni var að mati Rauða krossins ekki í samræmi við markmið laganna um mannúð, burtséð frá því hvort verklag sem þetta hafi verið viðhaft áður og Útlendingastofnun telji sig hafa farið eftir öllum reglum eins og fram kom í máli setts forstjóra stofnunarinnar í Kastljósi í gær.
„Með hliðsjón af aðstæðum í þessu máli hefði flutningur ekki átt að fara fram á þessum tímapunkti svo lífi og móður barns væri ekki stefnt í hættu,“ segir í yfirlýsingunni.