Alls verða 43 nýjar hraðhleðslustöðvar settar upp vítt og breitt um landið í kjölfar styrkúthlutunar frá Orkusjóði. Nýju stöðvarnar eru þrisvar sinnum aflmeiri en öflugustu stöðvarnar sem fyrir eru hérlendis og eiga að stuðla að hindrunarlausum ferðum rafbíla milli landshluta. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu Stjórnarráðsins.
146 hraðhleðslustöðvar um land allt
Styrkir Orkusjóðs er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta í samgöngum. Ríkisstjórnin kynnti í sumar markvissa uppbyggingu innviða vegna orkuskipta í samgöngum og í kjölfarið voru auglýstir fjárfestingarstyrkir til uppbyggingar öflugri hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla.
Einnig voru auglýstir fjárfestingarstyrkir til uppbyggingar hleðslustöðva við gististaði um allt land í sumar og var 30 milljónum úthlutað úr sjóðnum til gististaða í október. Markmiðið með þeim styrkjum er að liðka fyrir orkuskiptum hjá bílaleigum en bílaleigubílar eru um helmingur nýskráðra bíla.
Með nýju hraðhleðslustöðvunum fjölgar hraðhleðslustöðvum hér á landi um 40 prósent og verða stöðvarnar í heildina 146. Nýju stöðvarnar tilheyra nýrri kynslóð hraðhleðslustöðva en um er að ræða 150kW hleðslustöðvar. Öflugustu stöðvarnar hafa hingað til verið 50kW og flestar eru 22kW.
Næst hæsta hlutfall rafbíla og tengiltvinnbíla í heiminum
Rafbílum fjölgar hratt hér á landi og er Ísland í öðru sæti í heiminum á eftir Noregi hvað varðar hlutfall rafbíla og tengiltvinnbíla af fjölda nýskráðra bifreiða. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra segir að það sé frábært að verða vitni að þeirri hröðu fjölgun rafbíla sem nú eigi sér stað.
„Þetta er mjög mikilvægt loftslagsmál og við höfum lagt áherslu á að styðja vel við notendur þessara bíla með fjölgun hleðslustöðva. Það er því sérstaklega ánægjulegt að fá nú upp nýjar, aflmiklar stöðvar sem gerbreyta hleðslumöguleikum hér á landi,“ segir Guðmudnur Ingi.
„Orkuskiptin eru í fullum gangi og á örfáum vikum höfum við tilkynnt um aðgerðir þar sem heildarfjárfestingin nemur ríflega hálfum milljarði króna. Þetta er mjög stórt skref í því að gera samgöngur okkar vistvænar og hefur einnig mikla þýðingu fyrir markmið okkar að verða leiðandi í sjálfbærri ferðaþjónustu,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.