Hraðhleðslustöðvum fjölgar um 40 prósent

Orkusjóður hefur úthlutað styrkjum til uppsetningar 43 nýrra hraðhleðslustöðva vítt og breitt um landið. Ísland er í öðru sæti í heiminum hvað varðar hlutfall rafbíla og tengiltvinnbíla af fjölda nýskráðra bifreiða.

Hleðslustöð
Auglýsing

Alls verða 43 nýjar hrað­hleðslu­stöðvar settar upp vítt og breitt um landið í kjöl­far styrkút­hlut­unar frá Orku­sjóð­i. Nýju stöðv­arnar eru þrisvar sinnum afl­meiri en öfl­ug­ustu stöðv­arnar sem fyrir eru hér­lendis og eiga að stuðla að hindr­un­ar­lausum ferðum raf­bíla milli lands­hluta. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins.

146 hrað­hleðslu­stöðvar um land allt

­Styrkir Orku­sjóðs er hluti af aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum og upp­bygg­ingu inn­viða vegna orku­skipta í sam­göng­um. Rík­is­stjórnin kynnti í sum­ar mark­vissa upp­bygg­ingu inn­viða vegna orku­skipta í sam­göngum og í kjöl­farið voru aug­lýstir fjár­fest­ing­ar­styrkir til upp­bygg­ingar öfl­ugri hrað­hleðslu­stöðva fyrir raf­bíla. 

Einnig voru aug­lýstir fjár­fest­ing­ar­styrkir til upp­bygg­ingar hleðslu­stöðva við gisti­staði um allt land í sumar og var 30 millj­ónum úthlutað úr sjóðnum til gisti­staða í októ­ber. Mark­miðið með þeim styrkj­u­m er að liðka fyrir orku­skiptum hjá bíla­leigum en bíla­leigu­bílar eru um helm­ingur nýskráðra bíla. 

Auglýsing

Með nýju hrað­hleðslu­stöðv­unum fjölgar hrað­hleðslu­stöðvum hér á landi um 40 pró­sent og verða stöðv­arnar í heild­ina 146. Nýju stöðv­arnar til­heyra nýrri kyn­slóð hrað­hleðslu­stöðva en um er að ræða 150kW hleðslu­stöðv­ar. Öfl­ug­ustu stöðv­arnar hafa hingað til verið 50kW og flestar eru 22kW. 

Staðsetning nýju hleðslustöðvanna. Mynd: Umhverfisráðuneytið

Næst hæsta hlut­fall raf­bíla og tengilt­vinn­bíla í heim­inum

Raf­bílum fjölgar hratt hér á landi og er Ísland í öðru sæti í heim­inum á eftir Nor­egi hvað varðar hlut­fall raf­bíla og tengilt­vinn­bíla af fjölda nýskráðra bif­reiða. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra segir að það sé frá­bært að verða vitni að þeirri hröðu fjölgun raf­bíla sem nú eigi sér stað. 

Guðmundur Ingi og Þórdís Kolbrún„Þetta er mjög mik­il­vægt lofts­lags­mál og við höfum lagt áherslu á að styðja vel við not­endur þess­ara bíla með fjölgun hleðslu­stöðva. Það er því sér­stak­lega ánægju­legt að fá nú upp nýjar, afl­miklar stöðvar sem ger­breyta hleðslu­mögu­leikum hér á land­i,“ segir Guð­mu­dnur Ing­i. 

„Orku­skiptin eru í fullum gangi og á örfáum vikum höfum við til­kynnt um aðgerðir þar sem heild­ar­fjár­fest­ingin nemur ríf­lega hálfum millj­arði króna. Þetta er mjög stórt skref í því að gera sam­göngur okkar vist­vænar og hefur einnig mikla þýð­ingu fyrir mark­mið okkar að verða leið­andi í sjálf­bærri ferða­þjón­ust­u,“ segir Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ferða­mála- iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent