Mál sexmenninganna tekið fyrir í dag

Sexmenningarnir sem grunaðir eru um spillingu, fjársvik og peningaþvætti í tengslum við Samherjamálið í Namibíu koma fyrir dómara í dag. Þar verður tekin fyrir beiðni þeirra um lausn gegn tryggingu en tvívegis hefur þurft að fresta afgreiðslu málsins.

Sexmenningarnir í Namibíu Mynd: The Namibian
Auglýsing

Beiðni um lausn úr varð­haldi gegn trygg­ingu sex­­menn­ing­anna Sacky Shang­hala, Bern­­ard Esau, James Hatuikulipi, Ricardo Gusta­vo, Tam­­son Hatuikulipi og Pius Mwatul­elo verður tekin fyrir í dag. Afgreiðslu máls­ins hefur tví­vegis verið frestað. 

­Sex­menn­ing­arnir átt­u að koma fyrir dóm­ara síð­asta fimmtu­dag en mál­inu var þá frestað til föstu­dags til að menn­irnir fengju ráð­rúm til þess að ráð­færa sig við lög­menn sína. Á föstu­dag­inn greind­i frétta­mið­il­inn The Namibi­an síðan frá því að að þeir kæmu ekki fyrir dóm­ara þann dag­inn þar sem lög­menn þeirra, þeir Mike Hellens og Dawie Jou­bert frá Suð­ur­-Afr­íku, væru ekki með atvinnu­leyfi í Namibíu og gætu því ekki tekið málið að sér. 

Eins og fram hefur komið í fréttum þá voru sex­­menn­ing­­arnir hand­­teknir í vik­unni í tengslum við rann­­­sókn á Sam­herj­­­a­skjöl­unum og spill­ingu er teng­ist úthlutun afla­heim­ilda í Namib­­­íu. Þeir eiga yfir höfði sér ákæru fyrir skipu­lagða glæp­a­­starf­­semi.

Auglýsing

Að­il­­arnir sem um ræðir eru Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­mála­ráð­herra, James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður namibísku rík­­­is­út­­­­­gerð­­­ar­innar Fis­hcor í síð­­­­­ustu viku, Bern­hardt Esau, sem sagði af sér sem sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­ráð­herra, Tam­­­son 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­sonur Esau sem jafn­­­framt er frændi James Hatuikulipi, Ricardo Gusta­vo, sam­­­starfs­­­maður hans og Pius 'Taxa' Mwa­telu­lo, sem einnig teng­ist James Hatuikulipi fjöl­­­skyld­u­­­bönd­­­um.

Yfir­­­völd í Namib­­­íu, Íslandi og Nor­egi rann­saka nú ýmsa þætti sem tengj­­­ast starf­­­semi Sam­herja í Namib­­­íu, og eru þar á meðal upp­­­lýs­ingar um mút­­u­greiðsl­­­ur, skattaund­an­­­skot og pen­inga­þvætt­i.

Eng­inn hefur enn fengið stöðu grun­aðs manns á Íslandi vegna þessa, og hafa ekki farið fram neinar for­m­­­legar yfir­­­heyrslur vegna rann­­­sóknar mála.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent