Það er kominn tími til að hætta að láta Sjálfstæðisflokkinn endalaust velja sér nýja dansfélaga eftir kosningar og stjórna eftir eigin geðþótta. Þetta sagði Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, í umræðum um stöðuna í stjórnmálum í byrjun árs og verkefnin framundan á Alþingi í dag.
„Nú er kominn tími samstilltrar, djarfrar og víðsýnnar stjórnar, án Sjálfstæðisflokksins - fyrir allt fólkið í landinu og komandi kynslóðir. Stjórn sem leggur alla áherslu á ríkara félagslegt réttlæti og hefur á sama tíma meiri sköpunarkraft, framsýni og hugrekki,“ sagði Logi ennfremur og tiltók að Samfylkingin væri tilbúin í það verkefni.
Hagvöxtur sé horfinn og atvinnuleysi hefur tvöfaldast, neyðarástand ríki á bráðamóttökunni og heilbrigðiskerfið allt sé vanfjármagnað, losun gróðurhúsalofttegunda hafi aukist, málefni útlendinga séu í ólestri, veiðileyfagjöld séu orðin helmingi lægri en þegar ríkisstjórnin tók við, öryrkjar og eldri borgarar hafi dregist enn lengra aftur úr öðrum hópum, dómskerfið væri í uppnámi og Ísland væri á gráum lista.
Mikið talað fyrir ákveðnu ríkisstjórnarmynstri
Um er að ræða nokkuð kunnuglegt stef í ræðum Loga undanfarin misseri.
Í viðtali við Mannlíf í janúar í fyrra sagði Logi að hann vildi ríkisstjórn með Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum. „Ég held að við gætum náð mjög mörgum skemmtilegum og góðum málum á dagskrá ef við myndum mynda ríkisstjórn frá miðju til vinstri þar sem Samfylkingin væri kjölfestuflokkur og við hefðum svo Viðreisn og Pírata öðrum megin við okkur og Vinstri græn hinum megin við okkur.“
Á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fór fram í mars 2019 sagði hann að Ísland þyrfti ekki jafnvægi Sjálfstæðisflokksins sem byggði á því að örfáir sitja öðru megin á vegasaltinu, með þorra gæðanna en allur almennings héldi jafnvægi hinum megin.
Á öðrum flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem haldinn var í október í fyrra fjallaði hann meðal annars um, í ræðu sinni þar, hversu stór tíðindi ný staða Sjálfstæðisflokksins vegna minnkandi fylgis væri og að aðrir flokkar þurfi að bregðast við þessum nýja veruleika sem blasti við í íslenskum stjórnmálum. Hann sagði þetta vera sögulegt tækifæri fyrir Samfylkinguna til að fylkja saman umbótaöflunum í landinu og sýna að það sé til betri valkostur fyrir íslenskan almenning en núverandi ríkisstjórn. „Næsta stóra verkefni okkar er þetta: Við verðum, og segjum það bara skýrt, við verðum að fella þessa ríkisstjórn í kosningunum 2021, til að mynda betri, djarfari og víðsýnni stjórn fyrir fólkið í landinu og komandi kynslóðir - við verðum að rísa undir þeirri ábyrgð.