Stjórn Sorpu hefur ákveðið að segja upp framkvæmdastjóra félagsins, Birni H. Halldórssyni, með sex mánaða uppsagnarfresti samkvæmt ráðningarsamningi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sorpu í dag.
Í henni segir að þessi ákvörðun eigi sér meðal annars stoð í nýlegri skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um stjórnarhætti og áætlunargerð vegna gas- og jarðgerðarstöðvar þar sem meðal annars voru gerðar alvarlegar athugasemdir við störf og upplýsingagjöf framkvæmdastjóra og gerð kostnaðaráætlana.
„Að fengnum andmælum framkvæmdastjórans við efni skýrslunnar var ákveðið að veita honum áminningu í samræmi við ákvæði kjarasamnings og gefa honum kost á frekari skýringum og athugasemdum. Að þeim fengnum og í ljósi annarra aðstæðna var tekin ákvörðun um uppsögn,“ segir í tilkynningunni.
Helgi Þór Ingason tekur tímabundið við
Þá var einnig ákveðið á stjórnarfundinum í dag að ráða Dr. Helga Þór Ingason, prófessor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, tímabundið í starf framkvæmdastjóra Sorpu. „Helgi Þór er einnig forstöðumaður MPM náms – meistaranáms í verkefnastjórnun – við HR. Rannsóknir Helga Þórs og kennsla á framhalds- og grunnstigum háskóla hafa einkum snúist um verkefna- og gæðastjórnun. Helgi Þór var ráðinn tímabundið sem forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur á árunum 2010-2011,“
Samkvæmt stjórn Sorpu mun fyrirtækið ásamt Helga Þór og starfsmönnum vinna að endurskipulagningu rekstrar fyrirtækisins með sjálfbærni, umhverfisvernd og samfélagslega þjónustu að leiðarljósi. Stjórnin muni í þeirri vinnu kappkosta að eiga náið samráð við eigendur Sorpu en félagið er rekið sem byggðasamlag sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.