Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fjallar um stöðu álversins í Straumsvík í stöðuuppfærslu á Facebook í dag. Fram kom í fréttum í síðustu viku að Landsvirkjun ætti í samtali við Rio Tinto, eiganda álversins í Straumsvík, en fyrirtækið hefur tilkynnt að það ætli að hefja sérstaka endurskoðun á starfsemi álversins til að meta rekstrarhæfni þess til framtíðar.
Hann segist hafa miklar áhyggjur af stöðu stóriðjunnar og vel launuðum störfum sem hún skapar en það séu takmörk fyrir því hvað hægt sé að verja.
Ragnar Þór segir að eftir að hafa skoðað rekstrartölur fyrirtækisins komi margt áhugavert í ljós. Sérstaklega þegar skoðað sé hvaða liðir í rekstri orsaki þetta mikla tap síðastliðin 10 ár. „Árið 2011 voru afskriftir 2,77 prósent af eignum og hafa hækkað jafnt og þétt síðustu ár og voru komnar upp í 10,52 prósent af eignum árið 2018 og voru rúmir 45,6 milljónir dollarar það árið á meðan tapið var rúmir 44,6 milljónir dollarar. Þetta þýðir að samkvæmt rekstrarreikningi verður verksmiðjan verðlaus með öllu eftir um 10 ár,“ skrifar hann.
Þannig að tapið liggi að mestu í háum afskriftum þó markaðsaðstæður hjálpi þar ekki til.
„Ýmsum brellum beitt“
Ragnar Þór bendir á að á árinu 2018 hafi Ísal greitt 15,4 milljónir dollarar í þóknun til móðurfélags um 2 milljarðar króna á meðan að allar launagreiðslur með launatengdum gjöldum hjá fyrirtækinu hafi verið 46,6 milljónir dollara eða um 6 milljarðar króna.
Ef veltufé frá rekstri sé skoðað þá sé það jákvætt fyrir öll árin. Þannig sé ljóst að fyrirtækið sé ekki eins illa statt og búið hafi verið að fullyrða í „hræðsluáróðri gagnvart starfsfólki og stjórnvöldum.“
Auk þess taki móðurfélagið um 2 milljarða í þóknun á hverju ári út úr rekstrinum á Íslandi. Þá sé ótalið að fyrirtækið sitji beggja megin borðs þegar kemur að hráefniskaupum og sölu afurða sem álverið framleiðir og geti þannig haft áhrif á afkomu þess eftir hentisemi.
„Það er ýmsum brellum beitt til að græða meira og borga minni skatta. Og eru alþjóðleg stórfyrirtæki alræmd í þeim efnum. Ekki er líklegt að Rio Tinto sé undantekning í þeim efnum,“ skrifar hann.
Starfsfólki haldið í gíslingu
Þá telur Ragnar Þór að það ógeðfellda í þessu öllu saman sé að Rio Tinto neiti að gefa stjórnendum Ísal og SA leyfi til að skrifa undir kjarasamning sem aðilar hafi komið sér saman um og ætli sér að nota starfsfólkið í pólitískri refskák í samningaviðræðum við stjórnvöld og Landsvirkjun. „Ógeðfelldari aðferð er ekki hægt að hugsa sér að halda starfsfólki í gíslingu með þessum hætti ásamt gegndarlausum hræðsluáróðri með tilheyrandi óvissu fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra.“
Hann lýkur færslu sinni á að segja að tryggja verði að öllum samningaviðræður stjórnvalda og Landsvirkjunar við Rio Tinto um hugsanlega endurskoðun á raforkusamningi verði frestað þangað til búið sé að semja við fólkið sem þar starfar.
Staða Álversins í Straumsvík er mikið í umræðunni þessa dagana. Eigendur hafa lýst því yfir að endurmat sé hafið á...
Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Monday, February 17, 2020
Verið að sturta niður lífsviðurværi fólksins niður í holræsið
Sjá má að ekki eru allir verkalýðsforingjar á sama máli er varðar vandræði álversins en Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, telur að ef af verður og álverinu verði lokað þá sé verið að sturta niður lífsviðurværi fólksins sem þar starfar niður í holræsið.
Hann greindi frá því í stöðuuppfærslu í síðustu viku að álverið væri í dauðateygjunum vegna „græðgisvæðingar Landsvirkjunar.“ Hann sagði að á meðan álverið í Straumsvík hefði tapað tæpum 25 milljörðum hefði Landsvirkjun skilað tæpum 70 milljörðum í hagnað.
„Eins og margir tóku eftir þá fagnaði álverið í Straumsvík 50 ára afmæli í fyrra, en Landsvirkjun hélt upp á 50 ára afmæli sitt árið 2015.
Það er rétt að nefna að Landsvirkjun var í raun stofnuð vegna byggingu Búrfellsvirkjunar, fyrstu stórvirkjun landsins, sem sá og sér álverinu fyrir rafmagni og því sé fróðlegt að bera saman afkomu fyrirtækjanna síðustu árin,“ skrifaði hann.
Hann telur því að álverið í Straumsvík hafi markað upphafið að því stórveldi sem Landsvirkjun sé nú orðið, en „rétt er að geta þess að álverið í Straumsvík er næst stærsti viðskiptavinur Landsvirkjunar. Það er því eilítið fróðlegt að skoða fjárhagsstöðu þessara tveggja fyrirtækja síðustu 7 ára í ljósi þess að bæði fyrirtækin hafa fagnað 50 ára afmæli.“
Eins og margir tóku eftir þá fagnaði álverið í Straumsvík 50 ára afmæli í fyrra, en Landsvirkjun hélt upp á 50 ára...
Posted by Vilhjálmur Birgisson on Wednesday, February 12, 2020