Gömul vísa er aldrei of oft kveðin: Handþvottur er öflug vörn gegn smiti nú þegar faraldur nýrrar kórónuveiru geisar og gert er ráð fyrir að samkomubann fleiri en hundrað manna verði sett á frá og með 15. mars. Landlæknir hefur gefið út leiðbeiningar sem fylgja hér að neðan.
Auglýsing
- Þvoðu hendur þínar reglulega með vatni og sápu, minnst 20 sekúndur í hvert skipti.
- Ef vatn og sápa eru utan seilingar er gott að nota handspritt, til dæmis þegar þú hefur notað greiðslukort eða komið við fleti sem margir snerta, svo sem hurðarhúna. Á vef landlæknis eru góðar upplýsingar um hvernig gæta má varúðar gegn sýkingum.
- Ef þú þarft að hósta eða hnerra skaltu nota olnbogabótina eða einnota klúta. Þannig kemurðu í veg fyrir að úði fari á hendur. Gættu þess að hósta eða hnerra ekki á aðra.
- Takmarkaðu náin samskipti við annað fólk, t.d. handabönd og faðmlög. Finndu aðrar leiðir til þess að heilsa, sem ekki fela í sér snertingu.
- Reyndu að bera ekki hendur upp að andlitinu, sérstaklega augum, nefi og munni.
- Þrífðu oftar fleti sem eru mikið notaðir.
- Ef þú ert eldri borgari eða með ákveðna undirliggjandi sjúkdóma er ráðlagt að halda sig fjarri mannamótum og fjöldasamkomum.
- Forðastu að umgangast fólk sem er með einkenni sem minna á flensu.