Kjarasamningar milli Blaðamannafélags Íslands (BÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA) hafa verið undirritaðir. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef BÍ.
Í samantekt Hjálmars Jónssonar, formanns BÍ, á helstu atriðum sem í samningnum felast segir meðal annars að samningurinn sé afturvirkur til 1. mars og þá hækki öll laun og launataxtar um 17 þúsund krónur. Frá 1. apríl næstkomandi hækki öll laun um 18 þúsund krónur og kauptaxtar um 24 þúsund.
Frá 1. apríl sé launahækkunin þannig 35 þúsund að lágmarki fyrir alla og 41 þúsund fyrir þá sem eru á töxtunum.
Nýtt ákvæði um yfirvinnu
Hjálmar segir enn fremur í samantekt sinni að mikilvægasta ákvæðið í samningnum þegar til engri tíma er litið sé að hans mati nýtt ákvæði um yfirvinnu. „Ólaunuð yfirvinna hefur verið stærsta meinsemdin hvað varðar kjör blaðamanna á undanförnum árum, sem undantekningalítið vinna yfirvinnu án þess að fá hana greidda nema stundum, mismunandi eftir vinnustöðum. Afdráttarlaust er kveðið á um það að sé yfirvinna ekki greidd með venjulegum hætti er hægt að semja um að safna upp frídögum en fá yfirvinnuálagið greitt út með launum hverju sinni. Ef frídagar eru ekki teknir út fyrir 1. maí ár hvert eru þeir greiddir út,“ segir hann.
Fram kemur fram hjá Blaðamannafélaginu að upplýsingafundur um samninginn verði haldinn í húsnæði BÍ Síðumúla 23 klukkan 12:00 á morgun, föstudag. Þar verði farið yfir helstu atriði hans. Jafnframt verði farið að reglum sóttvarnarlæknis um samkomuhald og reynist þörf á verði annar fundur haldinn í hádeginu á mánudag.