Magn blautklúta margfaldast undanfarna daga – Hreinsistöð fráveitu óstarfhæf

Nú rennur óhreinsað skólp í sjó vegna blautklúta en stöðva hefur þurft dælur á meðan verið er að hreinsa þær og annan búnað.

Blautklútar í fráveitukerfinu nú um dagana.
Blautklútar í fráveitukerfinu nú um dagana.
Auglýsing

Hreinsi­stöð frá­veitu við Kletta­garða er nú óstarf­hæf og fer óhreinsað skólp í sjó. Ástæðan er gríð­ar­legt magn af blaut­klút­um, til að mynda sótt­hreinsi­klút­um, í frá­veitu­kerf­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Veit­um.

„Svo virð­ist sem magn slíkra klúta, sem hent er í sal­erni, hafi auk­ist marg­falt und­an­farna daga og hefur það skapað mikið álag á allan búnað hreinsi­stöðva og starfs­fólk,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Nú sé svo komið að stöðva þurfti dælur og verið sé að hreinsa þær og annan búnað stöðv­ar­inn­ar. „Við hvetjum fólk til að nota ekki kló­settin sem rusla­föt­ur. Blaut­klút­ar, hvort sem þeir eru not­aðir á and­lit og lík­ama eða til þrifa og sótt­hreins­un­ar, eiga heima í rusl­in­u.“

Auglýsing

Klettagarðar Mynd: Mats Wibe Lund

Skapar mikið álag á allan búnað hreinsi­stöðva og starfs­fólk

­Fyr­ir­tækið sá ástæðu til að vekja athygli á mál­inu síð­ast­lið­inn föstu­dag.

„Gríð­ar­legt magn af rusli berst nú í hreinsi­stöðvar frá­veitu Veitna í Kletta­görðum og í Ána­naust­um. Svo virð­ist sem magn blaut­klúta, sem hent er í sal­erni, hafi auk­ist marg­falt und­an­farna daga og skapar það mikið álag á allan búnað hreinsi­stöðva og starfs­fólk.

Mikil vinna og kostn­aður felst í því að hreinsa dælur og farga rusl­inu og þegar álag er mikið aukast líkur á bil­unum í bún­aði með til­heyr­andi afleið­ing­um,“ stóð í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins fyrir helgi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent