Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1.364 hér á landi. Í gær voru þau 1.319 og hefur þeim því fjölgað um 45 á einum sólarhring. Í dag eru 6.300 einstaklingar í sóttkví og hefur fækkað töluvert frá því í gær er fjöldinn var 7.166. Mun fleiri hafa nú lokið sóttkví eða 10.289.
Nú liggja 44 sjúklingar á sjúkrahúsi vegna COVID-19 sjúkdómsins, þar af tólf á gjörgæslu, samkvæmt því sem fram kemur á síðunni Covid.is. Þar kemur einnig fram að 309 hafi náð sér af sjúkdómnum til þessa.
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru fjögur látin.
Í dag hafa 22.195 sýni verið tekin frá upphafi faraldursins. Síðasta sólarhringinn voru 930 sýni tekin hjá Íslenskri erfðagreiningu og 335 hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.
55% þeirra sem hafa greinst með veiruna voru þegar í sóttkví. Þetta hefur sóttvarnalæknir sagt sýna hversu nauðsynleg sóttkví er þegar kemur að því að fækka smitum og hægja á útbreiðslu sjúkdómsins.
Smávægileg breyting myndi auka álag á gjörgæslu talsvert
Í spálíkani vísindamanna við Háskóla Íslands sem uppfært var í gær kemur fram að á meðan faraldurinn gengur yfir er gert ráð fyrir því að rúmlega 1.800 manns á Íslandi verði greind með COVID-19 í þessari bylgju faraldursins, en talan gæti náð nær 2.500 manns samkvæmt svartsýnni spá.
Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra einstaklinga með virkan sjúkdóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði sennilega um 1.200 manns, en gæti viku seinna náð 1.700 manns samkvæmt svartsýnni spá.
Þá er gert ráð fyrir að á meðan að faraldurinn gangi yfir muni 120 manns þarfnast innlagnar á sjúkrahús, en gæti náð hátt í 180 manns.
Mesta álag á heilbrigðisþjónustu vegna sjúkrahúsinnlagna verður fyrir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um það bil 60 einstaklingar geti verið inniliggjandi á sama tíma, en svartsýnni spá er 90 einstaklingar.
Gert er ráð fyrir því að á tíma faraldursins muni um 26 einstaklingar veikjast alvarlega, þ.e. þurfa innlögn á gjörgæslu, á tímabilinu en svartsýnni spá er 40 einstaklingar.
Mesta álag á gjörgæsludeildir gæti orðið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 10 manns liggi þar inni á sama tíma, en samkvæmt svartsýnni spá gætu það verið 18 manns.
Smávægileg hliðrun aldursdreifingar í átt að fleiri greindum smitum meðal einstaklinga yfir sextugt myndi auka álag á heilbrigðisþjónustu talsvert.