Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef spítalans.
Samtals hafa því átta manns látist á Íslandi vegna sjúkdómsins, sex á Landspítalanum, einn á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík og einn á Bolungarvík.
Í gær höfðu 1.675 greinst með kórónuveiruna hér á landi. Þá lágu fjörutíu sjúklingar á sjúkrahúsum vegna COVID-19, þar af ellefu á gjörgæslu.
Auglýsing