Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1.785 hér á landi. Í gær voru þau 1.778 og hefur þeim því fjölgað um sjö síðasta sólarhringinn. 94 smit hafa greinst á Vestfjörðum þar sem hópsýking braust út fyrir nokkrum vikum.
Í dag eru 898 í sóttkví en í gær var fjöldinn 1.026. Alls hafa 18.425 lokið sóttkví.
Í dag eru 313 einstaklingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöldinn 351.
1.462 hafa náð bata.
Alls hafa 44.468 sýni verið tekið hér á landi frá upphafi faraldursins.
Í gær voru 240 sýni rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og reyndust fjögur þeirra jákvætt. Hjá Íslenskri erfðagreiningu voru tekin 397 sýni og voru þrjú jákvætt.
Á sjúkrahúsi liggja nítján sjúklingar vegna COVID-19 sjúkdómsins, þar af fimm á gjörgæslu, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru tíu látin.
Samkvæmt því sem fram kemur á COVID.is hafa flest smit greinst í aldurshópnum 18-29 ára.
Fyrsta smitið af kórónuveirunni greindist á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í lok febrúar. Greindum smitum tók að fjölga smám saman í kjölfarið en fjöldinn tók svo stökk 16. mars er 46 greindust. Flest smit greindust 23. mars eða 106.