Kári: Þú hreyfir þig ekki hægt í svona ástandi

Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar hefur boðið forsætisráðherra að koma til hans á fund í Vatnsmýrinni þar sem fyrirtækið er til húsa.

Kári Stefánsson, forstjóri ÍE.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE.
Auglýsing

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar (ÍE), gagn­rýnir þann frest sem rík­is­stjórnin tók sér til að ráð­ast í stofnun far­alds­fræði­stofn­unar til að takast á við COVID-19 far­ald­ur­inn. Kári þekkt­ist ekki boð um að koma og ræða við Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í Stjórn­ar­ráð­inu í dag en bauð henni á sinn fund í Vatns­mýr­inni ef hún teldi það skila ein­hverju. Þetta kom fram í frétt RÚV í morg­un. 

„Það er dálítið kynd­ugt að í við­tali í gær þá segir Katrín að hún sé ekk­ert ósam­mála því að það væri skyn­sam­legt að setja upp svona stofnun eins og ég var að leggja til en að þetta þurfi allt að taka sinn tíma. Það vill svo til að við erum að fara í gegnum far­aldur sem er þess eðlis að við höfum séð ástæðu til þess að svipta fólk grund­vall­ar­mann­rétt­indum til þess að takast á við far­ald­ur­inn. Þegar þú ert á slíkum stað þá hreyfir þú þig ekki hægt,“ sagði hann í sam­tali við Morg­un­út­varpið á RÚV í morg­un.

Kári greindi frá því í gær í opnu bréfi til Katrínar að frá og með deg­inum í gær myndi Íslensk erfða­­­grein­ing hætta öllum sam­­­skiptum við sótt­­­varna­lækni og land­lækni út af SAR­S-CoV-2. Síð­­­­­ustu sýnin sem þau myndu afgreiða væru þau sem ber­­­ast til þeirra mán­u­dag­inn 13. júlí.

Auglýsing

Katrín tjáði sig á Face­book um málið í gær og sagði að hún von­að­ist til þess að stjórn­völd og ÍE fyndu lausn á þessu máli og getu haldið áfram því verk­efni að tryggja sem best heil­brigði þjóð­­ar­inn­­ar.

Vonar að hægt sé að fá ÍE til að halda áfram að skima

Karl G. Krist­ins­­son, yfir­­læknir sýkla- og veiru­fræð­i­­deild Land­­spít­­al­ans, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í gær að haf­ist hefði verið handa við það að rífa niður veggi á deild­inni, til þess að byggja þar upp nýja og betri aðstöðu með nýjum tækjum svo að deildin yrði í stakk búin til þess að taka við landamæra­skimunum af Íslenskri erfða­­grein­ingu. Stefnt er að því að þess­­ari vinnu ljúki í lok ágúst.

Hann von­­ast til þess að hægt verði að fá Íslenska erfða­­grein­ingu til að halda áfram að skima á landa­­mær­unum þangað til sýkla- og veiru­fræð­i­­deildin er til­­­búin eftir breyt­ing­­ar.

„Ann­­ars erum við ekki í góðum málum varð­andi ferða­­menn­ina. Það verður erfitt að skima alla sem eru að kom­a,“ sagði Karl, en hann sagði að deildin ann­aði því í mesta lagi að greina um 1.000 sýni á dag með núver­andi tækja­­kost­i.

Þar af væru kannski 2 til 300 sjúk­l­inga­­sýni frá Land­­spít­­al­­anum og því væri mög­u­­legt greina á bil­inu 5 til 700 sýni úr ferða­­mönn­um, eins og fram kom í skýrslu verk­efn­is­­stjórnar um sýna­­töku fyrir COVID-19 á landa­­mærum, sem skilað var til heil­brigð­is­ráð­herra í lok maí.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent