Vandamálið er ekki að einkafyrirtækið Íslensk erfðagreining ákveði að láta ekki misnota sig til eilífðar án samninga og samráðs – sem er alengt fyrirkomulag hjá ríkisstjórninni – heldur er vandamálið að við erum með ríkiskerfi sem er búið að grafa svo mikið undan í þágu einkafyrirtækja að kerfið gæti ekki virkað á tilskilinn hátt án þeirra. Það skrifast á Sjálfstæðisflokkinn og hamfarakapítalismann þeirra, fyrst og fremst, ásamt viðhlæjendur þeirra í öðrum flokkum.
Þetta segir Smári McCarthy, þingmaður Pírata, á Facebook-síðu sinni um þá stöðu sem komin er upp varðandi skimun á landamærunum. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, tilkynnti í gær að fyrirtækið myndi hætta skimun fyrir íslensk heilbrigðisyfirvöldum.
Smári segir að það sé rétt sem Kári segir að sýkla- og veirufræðideild Landspítalans ætti undir öllum eðlilegum kringumstæðum að vera nægilega vel útbúin tækjum, aðföngum og mannskap til að geta tekist á við þetta verkefni. „LSH ætti heilt yfir að vera betur í stakk búið en það er. Það er ekki skortur á fagþekkingu eða vilja til verksins, þvert á móti. En það er búinn að vera viðvarandi skortur á fjármagni,“ skrifar hann.
Ekki bara vandamál í heilbrigðiskerfinu
Þá telur Smári þetta ekki einungis vera vandamál í heilbrigðiskerfinu. „Sama hvert litið er hefur Sjálfstæðisflokkurinn undanfarna áratugi notað valdastöðu sína til að moka verkefnum yfir á einkageirann, oftast með um 30 prósent meiri kostnaði, og ábyrgðin áfram hjá ríkinu.
Einhvern veginn tókst til dæmis að byggja Ölfusárbrú árið 1945 þegar landið var nýstofnað, fátækt og nýkomið undan seinni heimsstyrjöld. En í dag, þegar Ísland er eitt ríkasta land heims er lífsins ómögulegt að byggja nýja brú án þess að fá einkaaðila að,“ skrifar hann.
Hann segir að það eina sem breyttist hafi verið viðhorf þeirra sem sitja að völdum ár eftir ár, áratug eftir áratug, til þess hvert hlutverk þeirra sé. Einu sinni hafi þetta snúist um að búa til gott samfélag.
Snýst um að maka krókinn
„Núna snýst þetta um að maka krókinn. Fyrir vikið, þótt ég hefði gjarnan viljað sleppa því að sjá Kára Stefánsson taka enn eitt frekjukastið, sérstaklega þegar það gæti bitnað á almannaheilsu og öryggi, þá verð ég að viðurkenna að það er svolítið ánægjulegt að sjá ríkisstjórnina sem getur ekki tekið jafnvel auðveldustu ákvarðanir um almannahag fá ærlega á baukinn frá einum einkaaðilanum sem Sjallar hömpuðu á sínum tíma.
En schadenfreude er vont nesti. Væri ekki betra ef ríkisstjórnin tæki sig til og gerði það sem þarf til að tryggja að sýkla- og veirufræðideild LSH geti unnið úr þeim fjölda sýna á hverjum degi sem þörf er á, og það án þess að brenna út starfsfólkið í leiðinni?“ skrifar hann.
Smári segist þó ekki ætla að halda niðri í sér andanum. „Vil ekki verða jafn blár og skepnan sem bjó til vandamálið.“
Vandamálið er ekki að einkafyrirtækið Íslensk Erfðagreining ákveði að láta ekki misnota sig til eilífðar án samninga og...
Posted by Smári McCarthy on Tuesday, July 7, 2020