Rio Tinto, sem rekur álverið í Straumsvík, hefur farið fram á það að Samkeppniseftirlitið taki „á samkeppnishamlandi háttsemi Landsvirkjunar með mismunandi verðlagningu og langtímaorkusamningum, svo að álver ISAL og önnur íslensk framleiðsla og fyrirtæki geti keppt á alþjóðavettvangi“. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag.
Í tilkynningunni er haft eftir Alf Barrios, forstjóra Rio Tinto Aluminium, að ef ekki verði tekið á „misnotkun Landsvirkjunar á markaðsráðandi stöðu sinni“ á íslenskum orkumarkaði eigi Ísland á hættu að „glata stórum útflutningsfyrirtækjum á borð við ISAL í Straumsvík“.
Barrios segir að ISAL greiði „umtalsvert meira fyrir orku sína en aðrir álframleiðendur á Íslandi“ sem grafi undan samkeppnisstöðu fyrirtækisins. „Við getum ekki haldið áfram að framleiða ál á Íslandi sé verðlagning orkunnar ekki gagnsæ, sanngjörn og alþjóðlega samkeppnishæf. Í millitíðinni munu teymi okkar hjá ISAL halda áfram að einbeita sér að því að draga úr kostnaði á öruggan hátt, bæta framleiðni og standa við skuldbindingar okkar gagnvart viðskiptavinum.“
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, greindi frá því í lok febrúar að Landsvirkjun hefði óskað formlega eftir því við Rio Tinto að trúnaðarákvæðum verði aflétt af rafmagnssamningi fyrirtækjanna þannig að hægt yrði að ræða opinberlega um meginefni hans. Taldi hann þetta æskilegt, í anda gagnsæis og einnig mikilvægt fyrir samfélagið.
Í tilkynningu Rio Tinto sem send var í dag kemur fram að félagið hafi að undanförnu átt í viðræðum við Landsvirkjun til að „tryggja sjálfbæra framtíð álversins“ og þeirra 500 starfa sem þar séu í húfi. „Þrátt fyrir ítrekaða viðleitni af hálfu Rio Tinto til að koma á uppbyggilegu samtali hefur fyrirtækið nú komist að þeirri niðurstöðu að Landsvirkjun sé ekki tilbúin til að bæta núverandi raforkusamning ISAL sem gerir fyrirtækið sjálfbært og samkeppnishæft og taka á skaðlegri hegðun og mismunun Landsvirkjunar gagnvart ISAL.“
Þann 12. febrúar tilkynnti Rio Tinto um sérstaka endurskoðun á starfsemi álvers ISAL í Straumsvík. Rio Tinto hefur lokið fyrsta áfanga stefnumótandi endurskoðunar með kvörtun til Samkeppniseftirlitsins. „Láti Landsvirkjun ekki af skaðlegri háttsemi sinni, hefur ISAL ekki annan kost en að íhuga að segja upp orkusamningi sínum við Landsvirkjun og virkja áætlun um lokun álversins.“
Núgildandi raforkusamningur milli Landsvirkjunar og Rio Tinto hefur verið í gildi frá árinu 2010 og var endurskoðaður árið 2014. Starfsleyfi Rio Tinto á Íslandi hf. var gefið út af Umhverfisstofnun 7. nóvember 2005 og gildir það til 1. nóvember í ár.
Rio Tinto á Íslandi hf. er að fullu í eigu Rio Tinto sem er alþjóðlegt námafélag með höfuðstöðvar í London. Félagið var stofnað árið 1873 utan um koparvinnslu á Spáni. Álsvið félagsins, Rio Tinto Aluminium (RTA), er einn stærsti álframleiðandi heims og hefur höfuðstöðvar í Montreal í Kanada.